Laugardagur, 18. maí 2019
Vinstri grænir leyfa áhlaup á náttúru Íslands
Innleiðing 3. orkupakkans felur í sér að Ísland verði hluti af orkusambandi ESB. Yfirlýst markmið orkusambandsins er að útrýma orkueyjum með sameiginlegu orkuneti.
Orkustefna ESB tekur til allra þátta raforkumála, frá virkjunum til neytenda og stórnotenda. Sameiginlegar reglur gilda um framleiðslu og dreifingu.
Ef Ísland verður aðili að orkuneti ESB er einboðið að áhlaup verður gert á náttúru landsins. Raforkuverð í Evrópu er mun hærra en hér á landi. Í húfi er milljarða gróði annars vegar og hins vegar náttúra Íslands.
Furðu vekur að Vinstri grænir, sem sitja í ríkisstjórn, ætli að innleiða 3. orkupakka ESB með fyrirsjáanlegum afleiðingum fyrir náttúruvernd.
Ber að krefjast markaðsverðs | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Blessaður Páll!
Og segðu áhlaup á Þjóðríkið,Þetta er ekki minna en stórhættulegt fólk, sem að á að vera að stjórna hér.Saurþjöppur. 'Island er STJÓRNLAUST.
Kv Óskar
Óskar Kristinsson, 18.5.2019 kl. 20:04
Sæll. Mér fannst gaman að vinna með þér á DV forðum.
Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson), 18.5.2019 kl. 21:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.