Miðvikudagur, 17. apríl 2019
Guðmundur Andri og valdefling reiðinnar
Reiðin er vopn í stjórnmálum, það vita samfylkingarmenn upp á hár. Reiðinni var beitt miskunnarlaust af vinstrimönnum eftir hrun. Útgerðamenn, landsbyggðin, Sigmundur Davíð, Hanna Birna og nú síðast Sigríður Andersen urðu fyrir barðinu á skipulögðum reiðiköstum.
En nú finnst Guðmundi Andra þingmanni Samfylkingar nóg komið, Reiðiköstum í þágu valdeflingar pólitískra sjónarmiða verður að linna.
Guðmundur Andri fann á eigin skinni reiðikast samborgara. Samkvæmt greiningu þingmannsins hefst reiðin á netmiðlum og flýtur þaðan inn á daglegan vettvang, s.s. í stórmarkaði.
Ef tilgáta Guðmundar Andra er rétt ber þeir mesta ábyrgð sem stunda gífuryrði á netinu. Ekki þarf flókna textafræðirannsókn til að leiða í ljós að fáir komast þar með tærnar sem valinkunnir vinstrimenn eru með hælana - og er þá ekki átt við tjaldhæla.
Kallaði þingmann Samfylkingardrullu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Það er ekki það sama að gefa eða þiggja.
Ragnhildur Kolka, 17.4.2019 kl. 16:19
Voru einhver vitni. Eða er þetta bara íslenskur Smollett?
Gunnar Rögnvaldsson, 17.4.2019 kl. 22:56
Hvers konar maður vælir og volar þótt einhver skammi hann eins og hund? Hvað með það?
Sá sem skammaðist hefur sennilega farið mannavillt og ruglast á vælukjóanum í Bónus og Guðmund Andra rithöfundi sem elskar bardaga og illdeilur.
Benedikt Halldórsson, 18.4.2019 kl. 05:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.