Miðvikudagur, 22. ágúst 2018
Facebook, hatur og sjálfhverfa fjölmiðla
Hatur var til í heiminum áður en Facebook kom til sögunnar, svona ef einhverjir skyldu halda annað. Hvorki Hitler, Stalín né Pol Pot nýttu sér Facebook en skildu samt eftir sig slóð manndrápa og óhæfuverka.
Kjarninn í frétt mbl.is, sem er endursögn á grein í New York Times, er eftirfarandi:
En í hinum raunverulega heimi þá velur fólk sjálft á hvern það hlustar og hverja það velur að hunsa. Faglegir hliðverðir, svo sem leiðarahöfundar eða formenn stjórnmálaflokka ráða því hvaða skoðunum er haldið á lofti. En Facebook virðir slíkt að vettugi.
Jú, Facebook í þessu skilningi lýðræðisvæðir. Hver og einn getur orðið fjölmiðill, ekki aðeins forréttindastéttir.
Falsfréttir voru til fyrir daga Facebook. Til dæmis fréttin frá 1964 um að ung kona var drepin í New York og 38 stóðu aðgerðalausir hjá. Sú frétt varð að háskólatexta um kaldlyndi íbúa stórborga.
Fréttin var fals. Og New York Times bjó til falsfréttina.
Kyndir Facebook undir andúð? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.