Þriðjudagur, 24. júlí 2018
Bretar hafna EES - Ísland hjálenda
Almenn samstaða er í Bretlandi um að ekki komi til greina eftir úrsögn úr Evrópusambandinu, Brexit, að gangast undir stöðu hjálendu sambandsins með aðild að EES-samningnum.
En Ísland, Noregur og Liechtenstein byggja samskipti sín við ESB á EES-samningnum.
Hjálendustaða Íslands gagnvart Evrópusambandinu verður að breyta. Á aldarafmæli fullveldisins er full ástæða til að undirbúa fríverslunarsamning við Evrópusambandið er leysti af hólmi EES-samninginn.
Skoðar fríverslunarsamning við ESB | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Ef að forseti Íslands ætti nú að stilla upp kostum og göllum
EES samningsins hlið við hlið.
Hvort myndi þá vega þyngra hjá honum?
Jón Þórhallsson, 24.7.2018 kl. 18:30
Forsetinn ræður engu um það. En núverandi mætti gera betur en forveri hans í annan lið að láta svo lítið að taka mark á undirskriftalistunum sem honum berast og efna til þjóðaratkvæðagreiðslu. Hefði sá gert það væri þó amk vissa fyrir því hverjum mætti um kenna EES samningsómyndina.
Kolbrún Hilmars, 24.7.2018 kl. 22:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.