Mánudagur, 16. júlí 2018
Trump þolir ekki ESB-Evrópu, 2 ástæður
Trump náði forsetakjöri út á stjórnmál sem kennd eru við sjálfsvitund. Til skamms tíma voru sjálfsvitundarstjórnmál séreign vinstrimanna. Kænska Trump fólst í því að hann virkjaði öflugustu sjálfsvitundina, sem er bandarísk þjóðernisvitund. Slagorðið ,,gerum Ameríku máttuga" skóp sigurinn 2016.
ESB-Evrópa er stofnuð til að ganga milli bols og höfuðs á þjóðernisvitund. Engin landamæri þjóðríkja og opingáttarstefna gagnvart flóttamönnum er hvorttveggja andstyggð í augum sitjandi forseta Bandaríkjanna.
Önnur ástæða fyrir óþoli Trump er að ESB-Evrópa lætur Bandaríkin niðurgreiða útþensluna í austur. ESB-Evrópa gerir Rússa, Pútín forseta sérstaklega, að höfuðóvini. Tilgangurinn er að samfylkja ESB-Evrópu gegn sameiginlegum óvini. ,,Hvort viljið þið að Evrópu sé stjórnað frá Brussel eða Moskvu?" er falska tvíhyggjan sem leiðtogar ESB-Evrópu reyna að selja. Hernaðarmátturinn á bakvið útþensluna er Nató, sem Bandaríkin fjármagna að stærstum hluta. Trump sá rautt þegar hann kom auga á samhengið.
Trump og Pútín eru pólitískir sálufélagar. Báðir eru hlynntir þjóðernisvitund og virkum landamærum. En ESB-Evrópa stendur fyrir fjölmenningu og opin landamæri.
ESB-Evrópa er óvinur númer eitt. Af skiljanlegum ástæðum.
ESB versti óvinur Trumps | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Merkel getur sjálfri sér um kennt. Að gefa “erkióvininum” ótakmarkað vald yfir gasnotkun Þýskalands hefði opnað augun á blindum ketti. Svo augljós er tvöfeldnin.
Ragnhildur Kolka, 16.7.2018 kl. 09:26
Verulega vel hugsuð grein hjá Páli hér, rétt eins og hans nýjasta grein:
Jón Valur Jensson, 16.7.2018 kl. 13:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.