Sunnudagur, 8. júlí 2018
Merkel tapaði íhaldinu, verður að víkja
Angela Merkel Þýskalandskanslari tók vinstribeygju í málefnum flóttamanna og tapaði íhaldssömu baklandi. Merkel verður að víkja ef Evrópusambandið á að lifa. Þetta skrifar dálkahöfundur New York Times, Bret Stephens. Grein hans er tekin af alvöru í Þýskalandi, Die Welt endursegir rökfærsluna.
Opingáttarstefna Merkel í viðtöku flóttamanna er ástæðan fyrir því að kjósendur íhaldssamra flokka hverfa í unnvörpum frá þeim og leita til stjórnmálaflokka með harðari stefnu í málaflokknum. Þetta gildir ekki aðeins um Þýskaland, segir Stephens, heldur Austurríki, Ítalíu og Svíþjóð. Bretar kusu Brexit til að loka á opingáttarstefnu Merkel.
Stephens rekur raunasögu Evrópusambandsins á þessari öld: evru-kreppan, flóttamanna-kreppan og úrsögn Breta, Brexit. Af 18 árum aldarinnar er Merkel við völd í 13 ár. Nóg er komið, segir sá bandaríski.
Staða Merkel í Þýskalandi ætti að vera tilefni miðhægriflokka á Íslandi til að staldra við og spyrja sig: erum við á vinstrileið Merkel þar sem íhaldssamir kjósendur yfirgefa okkar og leita annað?
Athugasemdir
Var alþingi ekki að setja lög, í árslok 2016, til þess að liðka fyrir hælisleitendum á Íslandi?
Hörður Þormar, 8.7.2018 kl. 17:22
Vona allra vegna að Bret Stephens sé sannspár og að Merkel fari sem fyrst..
Valdimar Samúelsson, 8.7.2018 kl. 19:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.