Bretar hafna hjálendustöðu Íslands

Ísland er hjálenda Evrópusambandsins, ásamt Noregi og Liechtenstein, í gegnum EES-samninginn. Bretar hafna aðild að EES eftir úrsögn úr ESB, Brexit.

Ákvörðun Breta felur í sér dauðadóm yfir EES-samningnum. Um leið og Bretland er komið með samning við ESB, eða sleppir því alfarið, verður öllum morgunljóst að EES er valdaframsal sem stenst enga skoðun.

Í dag er EES-samningurinn í öndunarvél embættismanna í Reykjavík og Osló. Tímabært er að pólitísk yfirvöld kippi öndunarvélinni úr sambandi. EES-samningurinn á heima á sama stað og Gamli sáttmáli - á ruslahaugi sögunnar.


mbl.is Breskir þingmenn hafna EES
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bjarni Jónsson

Tek undir þetta.  EES var bráðabirgða fyrirkomulag, aðlögunarkerfi að ESB.  Þeir, sem ekki ætla inn í ESB, eiga að fara út úr EES.  

Bjarni Jónsson, 14.6.2018 kl. 11:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband