Mánudagur, 2. apríl 2018
Vælið í Woodstock-kynslóðinni og börnum hennar
Woodstock-kynslóðin, 65 ára og eldri, kenndi börnum sínum eftirfarandi: við viljum lífsgæði, forréttindi - og það strax - en alls ekki axla ábyrgð á lífi okkar, segir í gagnrýni á þessar tvær kynslóðir í Welt.
Nokkuð til í þessu, með fyrirvara um alhæfingar. Á Íslandi vælir Woodstock-kynslóði um bág kjör aldraða. Þetta er sú kynslóð sem best hefur haft kjörin allra kynslóða Íslandssögunnar. Hún getur hætt að vinna í blóma lífsins, 65-70 ára, á góðum lífeyri og á meiri eignir en sögur fara af öðrum kynslóðum. Vælir samt út í eitt um hve lífið sé skítt.
Börn þessarar kynslóðar, á fimmtugs og sextugsaldri, bera mesta ábyrgð á hruninu og þar var ekki ábyrgðinni fyrir að fara. Hugmyndi var að veðsetja óbornar kynslóðir Íslendinga með Icesave I-III. Góðu heilli voru ekki öll eplin skemmd. Ólafur Ragnar af Woostock-kynslóðin gekkst fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu og barn kynslóðarinnar, Sigmundur Davíð, fann leið til að láta þrotabú bankanna bera skaðann. (Meðal annarra orða: hvers vegna er ekki komin stytta af Sigmundi Davíð við hlið Jóns Sig. á Austurvelli?)
Heimtufrekju tveggja kynslóða til lífsgæða, sem ekki eru sjálfbær, er tímabært að reisa skorður við. Það má byrja á því að hækka lífeyrisaldurinn upp í 75 ár. Vinnandi fólk hefur minni tíma í vælið.
Athugasemdir
Stytta af Sigmundi Davíð á Austurvelli myndi vekja heimsathygli eins og fyrirmyndin :)
Wilhelm Emilsson, 2.4.2018 kl. 19:49
Ætli sé ekki best að bíða með styttu af Sigmundi um sinn. Það er nú nýbúið að tjarga og fiðra NATO styttuna á Hagatorgi. Aldrei að vita nema athafnamennirnir lumi enn á efniviðnum.
Ragnhildur Kolka, 2.4.2018 kl. 21:38
Það voru ekki allir á Woodstock, Páll. Hvorki í orði, né á borði. Ég myndi flokka þennan pistil undir alhæfingavaðal.
Góðar stundir, með kveðju að sunnan.
Halldór Egill Guðnason, 3.4.2018 kl. 02:15
Með kveðju!
https://www.youtube.com/watch?v=TrWNTqbLFFE
Wilhelm Emilsson, 3.4.2018 kl. 05:59
Wilhelm, þessi er betri ..
https://www.youtube.com/watch?v=I6_wS4WFCmk
Örn Einar Hansen, 3.4.2018 kl. 07:41
Síðan fyrir þá sem aldrei komu til Woodstock, þá er bara að horfa á þessa útgáfu ... og sjái menn, þetta gæti bara verið í þórsmörkinni hér áður ... eða verslunarmannahelgi á Íslandi!
Enginn ástæða að öfundast út í Woodstock kynslóðina, þetta gerðist á ári hverju heima fyrir hér áður.
https://www.youtube.com/watch?v=_yrGJSPndf8
Örn Einar Hansen, 3.4.2018 kl. 07:56
Takk, Bjarne. Frábær útgáfa af laginu.
Wilhelm Emilsson, 3.4.2018 kl. 08:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.