Þriðjudagur, 13. febrúar 2018
Dagur óttast Eyþór
Eyþór Arnalds, oddviti sjálfstæðismanna í Reykjavík, er borgarstjóralegur í fasi og framkomu.
Sitjandi borgarstjóri, Dagur B. Eggertsson, veit það manna best og beitir klækjum til að koma í veg fyrir að Eyþór sitji fundi og gæti skyggt á Dag.
Með því að vísa Eyþóri af fundi gerir Dagur ekki annað en að auglýsa örvæntingu sína um pólitíska stöðu vinstrimanna í borginni.
Einn hafði ekki eins gaman að þessu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
"Litlu verður Vöggur feginn!"
Þorsteinn Briem, 13.2.2018 kl. 17:05
Dagur er dekurdrengur sem fúnkerar aðeins þegar hann klippir á borða og allir brosa og hrópa húrra. Það sýndi sig þegar hann mætti Eyþóri í Kastljósinu að hann var skíthræddur. Sat fremst á stólbrúninni, sveittur í lófunum og reyndi að tala Eyþór í kaf. Eyþór þurfti aðeins brot af tímanum til að koma staðreyndunum á framfæri. Dagur hefði átt að læra af þessu.
Það er ekki flott að missa kúlið þegar andstæðingurinn mætir óvænt. Ekkert hefði sýnt það betur en viðbrögðin í Höfða. Hann var eins og krakki sem hélt hann hefði komist upp með prakkarastrik en þess í stað verið tekinn á teppið. Egóið beið skipbrot.
Jafnvel þótt vinstrimenn nái að jarma sig saman í meirihluta þá mun þessi vitneskja alla tíð standa honum fyrir þrifum í návist Eyþórs.
Ragnhildur Kolka, 13.2.2018 kl. 21:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.