Diplómatískur sigur Trump

Fjölmiðlar eru svo uppteknir við að útmála Trump Bandaríkjaforseta sem kjána að þeir taka ekki eftir diplómatískum stórsigrum hans. Norður-Kórea og Suður-Kórea boða viðræður sín á milli en þær hafa lengið niðri í tvö ár.

Norður-Kórea snýr þar með af vegi kjarnorkuvopnaskaks og leitar eftir samtali. Ástæðan fyrir viðsnúningi kommúnistaríkisins getur ekki verið nema ein. Trump gaf ekki eftir hótunum Norður-Kóreu heldur svaraði hann í sömu mynt.

Staðfesta en ekki eftirgjöf gagnvart yfirgangi skilar árangri. Í deilunni á Kóreuskaga stendur Trump með pálmann í höndunum.

 


mbl.is Minn er stærri en hans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Arnór Baldvinsson

Þú ert að ruglast á löndum, Páll!  Spennan er milli Bandaríkjanna og Norður Kóreu og sú spenna hefur enn aukist með fíflalátum Trumps, nú síðast í gærkvöld.  Þú getur sofið rólegur, en fólki hér í skotlínunni frá Norður Kóreu stendur ekki alveg á sama!  Þetta eru ekki "stórsigrar" eins og þú kallar það í fáfræði, heldur raunveruleg og óásætranleg ógn við öryggi Bandaríkjanna.  

Kveðja.

Arnór Baldvinsson, 3.1.2018 kl. 10:26

2 Smámynd: Jón Ragnarsson

Ég verð að taka skjáskot af þessu "Ég er með stærra typpi" er "diplómatískur sigur". #ekkibaggalútur

Jón Ragnarsson, 3.1.2018 kl. 10:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband