Mánudagur, 23. október 2017
Edda við Katrínu Jakobs: við erum ekki glæpamenn
Vinstrimenn draga upp þá mynd að þeir sem eiga peninga séu glæpamenn. Samfylkingin boðar eignaupptöku og Vinstri grænir skatta á lífeyrisþega. Edda Þórarinsdóttir skrifar formanni Vinstri grænna opið bréf og vegna skattahugmynda Katrínar og félaga.
Edda segir um 7200 manns eiga lífeyrinn sinn í fasteignum og verðbréfum. Og skrifar
Hóp sem hafði reynt að spara til elliáranna og búa sér til sinn eigin lífeyrissjóð, til dæmis með því að fjárfesta í steinsteypu - kaupa eða byggja húsnæði - eða jafnvel með því að kaupa ríkisskuldabréf. Þetta er hvorki ólöglegt né glæpsamlegt.
Edda telur sig þurfa að taka fram að heiðarlegt fólk sem á peninga stundi ekki glæpsamlega iðju. Vinstrimenn eru búnir að endurtaka svo oft að eignafólk sé upp til hópa glæpahyski sem skuli skattleggja út á guð og gaddinn.
Athugasemdir
Páll, gáðu að því að enginn skattur er á lífeyrisrétt ráðherra, embættismanna og þingmanna eða aðrar slíkar eignir. Indriði og Steingrímur vissu hvar skyldi draga mörkin.- Nákvæmlega jafnverðmæt réttindi skattleggjast, ja, eftir hugsjónum vinstrimanna, ekki satt?
Einar Sveinn Hálfdánarson, 23.10.2017 kl. 20:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.