Gunnar Smári; firring, svik og sósíalismi

Ingi Freyr Vilhjálmsson blaðamaður er sá þriðji úr sömu fjölskyldu sem tapar peningum á atvinnurekstri Gunnars Smára nýorðins sósíalista. Ingi Freyr skrifar um Gunnar Smára:

Eiginlega er ótrúlegt að fylgjast með þessu, hvílíkt taktleysi og firring; það er eins og maðurinn kunni ekki að staldra aðeins við og skammast sín og spyrja sjálfan um erindi sitt til að taka þátt í stjórnmálastarfi miðað við skaðann sem síðasta ævintýri hans hefur valdið venjulegu fólki sem hann vill nú vinna fyrir sem stjórnmálamaður.

Á mánudag stofnar Gunnar Smári sósíalistaflokk til að gera byltingu. Hann ætti að byrja á sjálfum sér. Til þess þarf ekki stjórnmálaflokk. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrossabrestur

Sósíalisti, er það ekki einhver sem talar tungum tveim og mælir sitt með hvorri?

Hrossabrestur, 28.4.2017 kl. 15:13

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Gunnar Smári brennur greinilega í skinninu að láta mikið og þá gott af sér leiða fyrir Ísland.Það fyrsta sem vakti athygli mína var tillagan um að "Ísland gengi í Noreg".Aldrei reyndi ég að komast að því hvernig það ætti að framkvæmast þótt glóran segði mér að það gerir ekkert land einhliða.Meira hvað margir finna til vanmáttar nema að tilheyra einhverju stærra ríki.-Verum bara stærilát og minnum á að Ísland hvílir á flekum álfanna í austri og vestri.  

Helga Kristjánsdóttir, 29.4.2017 kl. 01:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband