Unglingurinn á hótel mömmu - foreldrar fái kosningaréttinn

Sjálfræðisaldur var hækkaður um tvö ár rétt fyrir aldamót, úr 16 árum í 18. Í áratugi þar á undan lengdist viðvera ungs fólks i foreldrahúsum. Á hótel mömmu er unglingurinn verndaður og því fylgir að forræðið er hjá foreldrum.

Unglingar hafa ekki á síðustu áratugum sýnt merki þess að vilja slíta sig fyrr frá forræði foreldra og stofna til heimilis á eigin ábyrgð. Þvert á móti, sá tími lengist sem börn búa i skjóli foreldra.

Ef lækka á kosningaaldur ungs fólks mun kosningaþátttaka lækka. Reynslan sýnir að ungt fólk nýtir sér síður kosningaréttinn en þeir sem eldri eru.

Leiðin til að auka hlut ungs fólks í þjóðfélaginu er að foreldrar þeirra fá aukið vægi í kosningum. Það mætti til dæmis gefa foreldri 0,25% meira vægi í kosningum fyrir hvert barn innan 18 ára á heimilinu. Hjón með 4 börn væru þá hvort um sig með 1,5 atkvæði í almennum kosningum.

 


mbl.is Ungu fólki þykir það út undan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband