Fávísa þjóðin og hroki á flótta

Guðni Th. Jóhannesson forsetaframbjóðandi og stuðningsmenn hans eru hvekktir vegna upprifjunar á ummælum Guðna Th. um ,,fávísu" þjóðina sem framleiðir minningar eftir hentugleikum.

Guðni Th. reynir firra sig ábyrgð og fyrri daginn, þegar hann varð uppvís að stuðningi við verstu útgáfuna af Icesave. Vegna ummæla um fávísu þjóðina spyr Guðni í viðtali við Vísi.is

Hvernig getur kennari orðið þjóðarleiðtogi? Ég veit ekki svarið við því en ég ætla að minnsta kosti að vona að við náum að sameina þessa tvo ólíku heima því ef við getum það ekki erum við í vanda stödd.

Núna heitir það að þjóðin sé í vanda stödd ef hún getur ekki fyrirgefið hrokafulla sagnfræðingnum og gert hann að forseta.

Guðni hvorki vill né getur kannast við dómgreindarleysi sitt, t.d. í afstöðunni til Svavarsútgáfu Icesave, og heldur ekki beðist afsökunar vegna ummæla um að þjóðin sé fávís.

Stuðningsmenn Guðna Th. vonast til að þjóðarfylking myndist á bakvið hrokafulla sagnfræðinginn. Sagan geymir ófögur dæmi um hroka sem leiddur var til öndvegis. Við skulu heldur reka flóttann.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Bjarni

Var Vigdís Finnbogadóttir ekki kennari?

Jón Bjarni, 1.6.2016 kl. 10:58

2 Smámynd: Jón Bjarni

Þess má til gamans geta að Barack Obama Bandaríkjaforseti var kennari þar til hann hætti til að taka sæti á þingi..

Jón Bjarni, 1.6.2016 kl. 11:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband