Mánudagur, 18. apríl 2016
Góða fólkið: lýðræði er fyrir Steingrím J. ekki Ólaf Ragnar
Góða fólkið, vinstrimenn með pírataívafi, er ósátt við að Ólafur Ragnar Grímsson bjóði sig fram til forseta. Þau rök eru notuð að það sé ólýðræðislegt af Ólafi Ragnari að sækjast eftir endurkjöri.
Steingrímur J. Sigfússon þingmaður Vinstri grænna er níu sinnum búinn að bjóða sig fram til alþingis og setið á þingi frá 1983 - í 33 ár.
Góða fólkið telur lýðræði aðeins gilda fyrir suma.
Athugasemdir
Af hverju hafa Bandaríkjamenn og fleiri þjóðir það þannig, að forseti megi aðeins sitja í tvö kjörtímabil?
Af því að það er munur á því að persóna hafi ein tiltekin völd sem forseti en þingmaður deilir völdum sínum með 62 öðrum.
Ómar Ragnarsson, 18.4.2016 kl. 22:32
Þarf þá ekki að bera saman fleira en tímann,? Eins og hver er munurinn á völdum forseta BNA og forseta Íslnads.
Helga Kristjánsdóttir, 18.4.2016 kl. 23:27
Hann var nánast sóttur á Bessastaði af stórum hópi fólks. Og hann svaraði lýðræðislega, miðað við stjórnarskrá Íslands. Guði sé lof segi ég nú bara.
Elle_, 19.4.2016 kl. 00:02
Þreytandi menn sem ekki þekkja sinn vitjunartíma sama hvort þeir heita Steingrímur eða Ólafur Ragnar. Enginn er ómissandi.
Sigurður Helgi Magnússon (IP-tala skráð) 19.4.2016 kl. 00:06
Þannig var það Elle og við fögnum því.-
Helga Kristjánsdóttir, 19.4.2016 kl. 00:16
Helga ég hugsa ég flaggi bara, með lýðveldisfána.
Elle_, 19.4.2016 kl. 00:28
Er lýðræðið bara fyrir Steingrím J og Brigittu?
Samkvæmt stjórnarskránni hafa allir 35 ára og eldri rétt á að bjóða sig fram.
Ómar Gíslason, 19.4.2016 kl. 01:10
Birgitta var búin að lýsa því yfir að hún ætlði að hætta þingmennsku eftir þetta kjörtímabil.Það var ekki vitað til að nokkur gengi á eftr henni með að halda áfram. En nú er hún hætt við að hætta.-How come
Helga Kristjánsdóttir, 19.4.2016 kl. 02:40
Ómar þú hinn ágæti, haltu nú bara áfram að láta þér batna svo þú getir haldið áfram að hjóla, spara náttúrunna og fjasa um stjórnarskrá sem við Íslendingar viljum ekki og völdum aldrei neitt lið til að semja.
Við Íslendingar eigum eina ágæta, hvort sem þið Austurvallar þjóðin undir forystu RUF, Háskóla bullustamparnir eða þið hinir kjánarnir viljið kalla hanna Danska eða Franska.
.
Hrólfur Þ Hraundal, 19.4.2016 kl. 06:22
Góður punktur, Helga.
Wilhelm Emilsson, 19.4.2016 kl. 06:28
Ómar kom með góðan punkt um Bandaríkjaforseta kæri Hrólfur. Helga, Birgitta vildi forsetaembættið lagt niður en var samt með forseta í huga. Frekar valdníðslulegt. Nær væri að Íslandsforseti væri með enn sterkara pólitískt vald en nú.
Elle_, 19.4.2016 kl. 12:38
Munurinn Ómar er að Bandaríkjaforseti hefur gríðarleg völd en forseti Íslands hefur lítil sem engin raunveruleg völd og er fyrst og fremst fígúra. Samanburður þessara forseta er því algjörlega óraunhæfur.
Eggert Sigurbergsson, 20.4.2016 kl. 08:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.