Fjölmenningarsamfélag ESB lokar

Múslímsk hryðjuverkaógn lokar fjölmenningarsamfélaginu Belgíu. Ástæðan er að múslímskir hryðjuverkamenn eiga víða vinum að fagna í Belgíu er skjóta yfir þá skjólshúsi til að þeir megi næðis njóta að skipuleggja næstu ódæði.

Belgía hýsir höfuðborg Evrópusambandsins sem ber ábyrgð á frjálsri för hryðjuverkamanna undir formerkjum Schengen.

Í landamæralausu ESB er ekki hægt að finna hryðjuverkamanninn Abdeslam sem óx úr grasi í þekktasta fjölmenningarhverfi Belga, Molenbeek. Á meðan múslímski Abdeslam er frjáls ferða sinna er Belgía lokuð.


mbl.is Beygur í Íslendingum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Allt ber þetta að sama brunni,hættan er í leyni. Nákvæmlega það sem við erum sífellt að klifa á,þegar við bætast þær ógnvænlegu og óvanalegu.Geta eða vill blessaða góða fólkið ekki skilja það.

Helga Kristjánsdóttir, 24.11.2015 kl. 09:13

2 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Eins leiðinlegt og það er að segja það, þá ætla ég samt að gera það; I told you so.

Fjölmenningarsamfélagið er afsprengi velmegunar sem ýtir illaborguðum störfum yfir á fólk sem ekkert á. Í framhaldinu réttlætir fólk gerðir sínar með því að finna upp nýtt og hljómfagurt orð til að leggja yfir samvisku sína.

En brauðmolakenningin virkar og að endingu gerir fótumtroðið fólk uppreisn. 

Ragnhildur Kolka, 24.11.2015 kl. 09:22

3 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Abdeslam er ekki múslimi heldur glæpamaður.

Guðmundur Ásgeirsson, 24.11.2015 kl. 18:50

4 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Guðmundur, Abdeslam fremur glæpi sína í nafni íslam.

Ragnhildur Kolka, 25.11.2015 kl. 14:15

5 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Það er hluti af glæpnum, að kenna hann við ákveðin trúarbrögð. Ef ég myndi fremja glæp í nafni kistinnar trúar, væri það þá kristilegt? Nei að öllum líkindum ekki. Það að kenna sig við eitthvað gerir mann ekki sjálfkrafa að því sem maður kennir sig við. Sérstaklega ekki ef það er gert á fölskum forsendum. Við megum passa okkur að láta ekki blekkjast af slíkum fölsunum því það er einmitt það sem glæpamennirnir vilja.

Guðmundur Ásgeirsson, 25.11.2015 kl. 19:36

6 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Það er nú svoleiðis erfitt að henda reiður a hvað er íslam. Súnnar drepa Síja og sínar drepa Kúrda og ISIS drepur allt sem hreyfist. Hvað skyldi svo vera hið rétta íslam?

Ragnhildur Kolka, 26.11.2015 kl. 18:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband