ASÍ-maður kvartar undan kommúnisma atvinnurekenda

Við höf­um séð hvernig staðnaður komm­ún­ismi fór með marg­ar þjóðir í gjaldþrot. Hug­mynda­fræði SA er að leiða okk­ur á þann stað ef ekki verður ró­tæk breyt­ing á stefnu þeirra sam­taka,“ seg­ir Guðmund­ur.

Hér talar formaður aðildarfélags ASÍ, Félags vélstjóra og málmtæknimanna, og kvartar undan kommúnisma Samtaka atvinnulífsins.

Einu sinni var verkalýðshreyfingin höll undir kommúnisma, í merkingunni að miðstýring ríkisvaldsins skyldi vera sem viðtækust.

Í dag gagnrýnir verkalýðshreyfingin atvinnurekendur fyrir miðstýringu og óskar sér meira frelsis til samninga.

Til að gera málið enn skrítnara þá á verkalýðshreyfingin stóran hluta stærstu fyrirtækja landsins í gegnum lífeyrissjóðina.

Er ekki orðið tímabært að ASÍ-menn og strákarnir í SA komi sér saman um hvað snýr upp og hvað niður í samskiptum eigenda atvinnulífsins?


mbl.is SA hugmyndafræðilega gjaldþrota
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Páll Símonarson

Heill og sæll Páll. þessi sami Guðmundur Þ. Ragnarsson sem nú vælir undan atvinnurekendum samþykkti á ársfundi Gildi lífeyrissjóðs nýlega uppá 24,386 í laun fyrir árið 2014 handa Framkvæmdarstjóra. Sami Guðmundur samþykkti hækkun stórnarlauna í 93.018 kr á mánuði Stjórnarformaður hefur 186.036 krónur á mánuði. Sem gerir rúmar 2 miljónir á ári. Eins samþykki sami aðili kjaraskerðingu á sitt fólk um 4,2 prósent. Nei Páll hver tekur mark á slíkum formanni verkalýðsfélags. 

Jóhann Páll Símonarson, 10.5.2015 kl. 21:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband