Menning er við andspænis ykkur

Menning er hvorki búin til né skipulögð með stjórnvaldsákvörðunum. Menning er staðbundin og verður til í samlífi fólks og samspili við umhverfi. Tilraunir yfirvalda til að hanna menningu rekast alltaf á þann veruleika að menningu verður ekki stýrt.

Þeldökkir Bandaríkjamenn eru afkomendur þræla sem fengu frelsi um miðja 19. öld en varla full borgaraleg réttindi fyrr en vel hundrað árum síðar. Í Suðurríkjunum bjuggu þeir í plantekrukofum en í negrahverfum stórborgum norðursins. Menning þeldökkra sækir staðfestu í sögulega arfleifð og hversdagslegt líf, sem m.a. markast af þeirri staðreynd að þeldökkir eru hlutfallslega stærri kúnnahópur lögreglu og fangelsa en hvítir.

Bandaríkin eru að stofni fjölmenningarríki og stórveldi í þokkabót. Bandaríkin geta ekki búið til sambandaríska menningu sem heldur sæmilega innanlandsfriðinn.

Með steikinni má pæla í ályktun af samlífi menningarhópa í fjölmenningarríki.

Gleðileg jól.


mbl.is Lögreglumaður skaut þeldökkan mann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Þórhallsson

Það vantar alltaf meira umræðuna um jarðarbúa sem 1 lið: 

http://webtv.un.org/live-now/watch/24-hour-live-and-pre-recorded-programming/1571671822001/

Jón Þórhallsson, 24.12.2014 kl. 16:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband