Fimmtudagur, 25. september 2014
Hugtak skapar lífshættu
,,Túristagos" er heiti sem gosið í Holuhrauni fékk fljótlega eftir að ljóst varð að það myndi hvorki ógna mannabyggð né flugumferð.
Þegar saklaust heiti var komið á fyrirbærið töldu ferðaþjónustuaðilar óhætt að nálgast gosstöðvarnar.
Og lögðu sjálfa sig og aðra í lífshættu.
Orð eru máttug.
Vísindamenn yfirgáfu svæðið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Maður veltir fyrir sér landafræðikunnáttu blaðamanna í sambandi við gosið í Holuhrauni. Nú á gasskýið að hafa lagst yfir Víkursand og Óðalshraun. Ég er mjög kunnugur á gosstöðvunum og hef verið talinn vel að mér í örnefnum á þeim slóðum. Eini Víkursandurinn sem ég man þó eftir í fljótu bragði er í Héðinsfirði á milli Ólafsfjarðar og Siglufjarðar. Örnefnið Óðalshraun man ég hins vegar ekki eftir að hafa heyrt áður og veit því ekkert hvar það getur verið. Fyrst gasskýið er nyrst á Tröllaskaga, hvers vegna þurfa þá vísindamenn að yfirgefa Öskju? Kannski er þetta Óðalshraun einhvers staðar nálægt Öskju, hver veit?
corvus corax, 25.9.2014 kl. 09:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.