Fimmtudagur, 10. júlí 2014
Evran er gölluð vara
Án sameiginlegs ríkisvalds, nokkurs konar Stór-Evrópu, verður evrunni ekki bjargað, segir Athanasios Orphanides, fyrrverandi bankastjóri Seðlabanka Kýpur, og endurómar ríkjandi viðhorf um hvað þurfi til að lagfæra hönnunargalla evrunnar.
Á hinn bóginn er engin samstaða um það meðal evru-ríkjanna 18 og enn síður meðal ESB-ríkjanna 28 hvernig eigi að bæta úr göllum evrunnar. Aukið fullveldisframsal er bannorð í Bretlandi, sem líklega er á leiðinni út úr ESB, og í Frakklandi vex þeim fiskur um hrygg sem neita að framselja vald til Brussel.
Á meðan fullkomin óvissa er um framtíð evrunnar er fullkomlega óábyrgt að tala fyrir aðild Íslands að evru-svæðinu.
Yrðu mistök að taka upp evru | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Enn halda ástríðu,aðildarsinnar Esb áfram að tuða og lofa ofurvaldið sem þeir þrá að komast í. Við fullveldissinnar,höfum ekki til einskis hrists í gegnum óveðursskýin öll þau ár frá hruni,þegar við eygjum lygnan sjó framundan..
Helga Kristjánsdóttir, 10.7.2014 kl. 12:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.