Bloggherinn og vígstaða auðmanna

Bloggherinn undir stjórn Gunnars Steins Pálssonar fer ekki hátt eftir dóminn yfir Kaupþingsmönnum. Líkleg skýring á aðgerðarleysinu er að vígstaða auðmanna eru svo slæm að hún myndi versna við að ræsa út bloggherinn.

Gunnar Steinn og aðrir almannatenglar sem freista þess að móta almenningsálitið í þágu sérgreindra hagsmuna geta ekki búið til úr engu jákvætt andrúmsloft fyrir skjólstæðinga sína.

Hugmynd Kaupþingsmanna með því að fá réttarhöldunum frestað var að kaupa sér tíma í þeirri von að umhverfið yrði þeim jákvæðara þegar frá liði hruni. Tilraunir voru gerðar til að sveigja umræðuna frá ábyrgð auðmanna og beina yfir á stjórnmálamenn, og þar kom bloggherinn nokkuð við sögu, en sá farvegur þornaði fljótt upp.

Auðmenn báru lang stærsta ábyrgð á hruninu og réttlætismál er að þeir sæti ábyrgð í samræmi við afbrot sín. Þetta er meginkrafa samfélagins.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Er ekkert mál í gangi gegn þeim sem tæmdu Glitni?  Eða Landsbankann?  Auðvitað er ábyrgð efnahagshrunsins fyrst og fremst þeirra sem stjórnuðu bönkunum og rændu þá innan frá.  Jón Ásgeir og Pálmi Haraldsson og Bakkabræður verða að axla sinn hluta af ábyrgðinni og refsingunni.   Og Björgólfur Thor sem var ekki bara skuggastjórnandi Landsbankans, heldur líka persónulegur ráðgjafi Geirs Haarde og bar sem slíkur ábyrgð á að Geir valdi að gera ekkert eins og allir muna.

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 13.12.2013 kl. 11:49

2 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Helvíti væri gaman að fá lista yfir fótgönguliðið í bloggheimum. Mig rennir í grun að það sé að uppistöðu á vinstri vængnum og þá sérlega úr banka og útrásarflokknum Samfylkingunni.

Jón Steinar Ragnarsson, 13.12.2013 kl. 12:15

3 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Það er náttúrulega ekki herskylda Jón, svo mig grunar að málaliðarnir séu flestir hættir

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 13.12.2013 kl. 12:46

4 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Fróðlegt verður að sjá listann yfir bloggara auðmanna.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 13.12.2013 kl. 16:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband