Jón Gnarr leitar að óvinum

Jón Gnarr borgarstjóri ætlar sér framhaldslíf í pólitíkinni og leitar að nýjum vinkli. Í viðtali við Kjarnan prufukeyrir hann óvinaorðræðu gagnvart nágrannasveitarfélögum og og byrjar á því smæsta, Seltjarnarnesi. Hann segir

Seltjarnarnes er fyrir  Reykjavík eins og þú eigir íbúð og ríki frændi þinn eigi íbúð við hliðina á þér þar  sem er innangengt í þína. Hann hefur engar skyldur  gagnvart þinni íbúð en getur gengið inn í hana á  skítugum skónum og étið úr ísskápnum þegar hann  vill vegna þess að hann keypti íbúðina með þessum  réttindum.
Að sama skapi keyptir þú þína íbúð með  þessum vankanti. Þetta setur þig og frænda þinn í  sérkennilega stöðu.  Það er ekkert útigangsfólk á Seltjarnarnesi. Þar  er mjög lítill félagslegur vandi, lág glæpatíðni og  mikil nálægð við náttúru. Þetta eru lífsgæði sem  allir eiga að fá að njóta, ekki bara þeir sem hafa efni á að kaupa sér þau. Það er líka ekkert leikhús á  Seltjarnarnesi. Það er engin Sinfóníuhljómsveit Seltjarnarness. Það er hins vegar til staðar í Reykjavík  og er, ásamt alls konar annarri þjónustu, niðurgreitt  af borginni. Það er því mjög ósanngjarnt að ríkt fólk nýti sér þjónustuna án þess að borga fyrir hana."

Líklega ætlar Jón Gnarr að fylkja reiðum Reykvíkingum gegn Seltirningum sem séu afætur á borginni. Næst yrði það Garðabær, síðan Kópavogur og þar á eftir eitt sveitarfélaga af öðru sem fær að kenna á riddaranum í Reykjavík.

Ef Jóni tekst að skapa stríðsástand milli sveitarfélaganna á SV-horninu er kannski von að fólk gleymi að Jón Gnarr stendur ekki fyrir eitt eða neitt nema sjálfan sig.

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Ja hann er í þessum kjólnum núna. Stutt síðan hann vildi í allri ,auðmýkt, sameina Kópavog og höfuðborgina.

Helga Kristjánsdóttir, 4.10.2013 kl. 13:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband