ESB-óþarfi skorinn burt

IPA-styrkir frá Evrópusambandinu eru í meginatriðum af tvennu tagi. Í fyrsta lagi til að aðlaga stjórnkerfið kröfum ESB. Í öðru lagi til verkefna sem ekki voru brýn og þess vegna ekki fjármögnuð af ríkisvaldinu.

Núna þegar við erum hætt við að ganga inn í Evrópusambandið er óþarfinn skorinn burt.

Við erum betur sett  enda getum við notað eins og okkur sýnist 15 milljarðana sem við hefðum þurft að borga í aðildargjöld til Evrópusambandsins.


mbl.is Geta ekki bjargað verkefnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Æ já ég verð að viðurkenna að mér finnst þetta jarm með söknuði yfir mútunum frekar óþægileg.  Svona hálf hallærisleg.  Á endanum munum við græða á þessu, þó þeir peningar skili sér ekki strax.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 10.8.2013 kl. 15:00

2 Smámynd: Ómar Gíslason

IPA-styrkir eru mútur. Þetta þjóðfélag er stundum stórfurðulegt, það er eins og við viljum alltaf vera á einhverjum styrkjum frá hinum og þessum.

Getum við ekki bara staðið sjálf í lappirnar án allra þessara styrkja. Þessa styrki munum við þurfa að greiða til baka með aðildargjöldum.

Ómar Gíslason, 10.8.2013 kl. 15:37

3 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Ef til vill er ekki svo undarlegt að sumir kveinki sér.

Samkvæmt upplýsingum frá Vinnumálastofnun, sem eru birtar á forsíðu MBL í dag, fjölgar láglaunastörfum ört en tækifæri virðist skorta fyrir menntað fólk.  Einmitt þann hóp sem er líklegastur til þess að njóta IPA styrkjanna.

Kolbrún Hilmars, 10.8.2013 kl. 16:31

4 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Svo má líka benda á að vegna kröfunnar um mótframlag má segja að ESB hafi óbeint verið kominn með ákvörðunarvald um ríkissjóð.

Ragnhildur Kolka, 10.8.2013 kl. 20:20

5 Smámynd: Austmann,félagasamtök

Að Matís fær ekki lengur IPA-styrki er engin afsökun fyrir því að trassa grunnþjónustu við neytendur, sem Matís hefur augsýnilega gert árum saman.

Austmann,félagasamtök, 10.8.2013 kl. 20:28

6 Smámynd: Jón Ingi Cæsarsson

Afdalaumræða fólks með alvarlega minnimáttarkennd. 

Jón Ingi Cæsarsson, 10.8.2013 kl. 20:36

7 Smámynd: Austmann,félagasamtök

Jón Ingi, þeir einu sem eru með minnimáttarkennd í þessu máli eru kratar í Samfylkingunni, sem leggja sig marflata fyrir ofríki af hálfu ESB. En sem betur fer höfum við nú losnað við minnimáttarríkistjórn Jóhönnu.

Austmann,félagasamtök, 10.8.2013 kl. 21:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband