Jákvætt við hrunið: skuldsett neysla ei meir

Hrunið kenndi okkur að skuldsett neysla er heimskuleg og leiðir til ófarnaðar. Það er ekkert líf að keyra visakortið í botn hvern mánuð og taka langtímalán fyrir hjólhýsi eða sófasetti.

Fleiri skilja hversdagsleg sannindi um ráðdeild núna en fyrir hrun. En fleiri atriði spila rullu í minni innlendri eftirspurn en áður. Verslunin hefur ekki lagað sig að breyttu hagkerfi og vinnur með álagningu frá 2007. Færri láta hafa sig að fíflum með því að kaupa innflutta vöru með mörg hundruð prósenta álagningu verslunarinnar. Aukin netverslun ber þess merki.

Í haust og vetur kemur í ljós hvort allur þorri almennings annars vegar og hins vegar stjórnvöld og atvinnulífið geti stillt saman strengina til að verðbólgusamningar verði ekki gerðir. En þar hjálpaði ekki nýlegur úrskurður kjaradóm sem veitti milljónafólkinu kauphækkanir sem engar forsendur eru fyrir.

 


mbl.is Mælir með varkárni við áætlanagerð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband