Framsókn, fylgisaukningin og hættan á stórslysi

Framsóknarflokkurinn stórbætir sig í könnunum undanfarið. Meginástæðan fyrir því sterkri stöðu flokksins er að hann er með öfluga talsmenn sem hafa talað skýrt og ákveðið í stærstu pólitísku álitamálunum á kjörtímabilinu; ESB-umsókn Samfylkingar og Icesave-málinu.

Framsóknarflokkurinn sigraði bæði málin, ESB-umsóknin er svo gott sem dauð og Icesave-úrskurðurinn réttlætti stefnu flokksins fullkomlega.

Framsóknarflokkurinn mældist með meira fylgi í kjölfar Icesave-dómsins og fljótlega þar á eftir fór ríkisstjórnin með ESB-umsóknina í felur.

Eftir þessa atburði setti Framsóknarflokkurinn fram hugmyndir um að bjarga þeim 15 til 20 prósentum heimila landsins sem eru með allt niðurm sig fjárhagslega með því að setja afkomu ríkissjóðs í uppnám.

Framsóknarflokkurinn þarf að vinda ofan af þessum hugmyndinum, annars er hætta á stórslysi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Páll; sem og aðrir gestir þínir, jafnan !

Eru ekki; mestu hættumerki stórslyss, að fólk geti ekki - eftir áratuga reynslu, af þessum glæpa flokki (sem og; hinna 3 / D - S og V lista), freistast til, að kjósa þessa hörmung yfir sig þrátt fyrir : örlög Kaupfélaga og Samvinnu trygginga, sem og Sambands íslenzkra Samvinnufélaga, almennt ?

Reyndu ekki; að falsa söguna Páll minn - með einhverjum Draugasögum í björtu, segðu heldur frá þessum óþverra flokki þeirra Sigmundar Davíðs, eins og hann blasir við, öllu óbjöguðu fólki, að minnsta kosti.

Með beztu kveðjum; sem oftar, úr Árnesþingi / 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 15.3.2013 kl. 12:12

2 Smámynd: Kjartan Aðalbjörnsson

Sumt fólk neitar að borga, Icesave (sem sjálfsagt var að við borguðum að hluta), húsnæðisskuldir og jafnvel bílaskuldir. Þetta fólk kýs Framsóknarflokkinn.

Kjartan Aðalbjörnsson, 17.3.2013 kl. 00:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband