Evran er varnarlaus

Eftirfarandi er haft eftir Frakklandsforseta: Myntbandalag verður að búa yfir gengisstefnu. Sé svo ekki stýrist það af gengi sem endurspeglar ekki raunverulega stöðu efnahagslífsins.“

Með orðinu ,,gengisstefnu" á Hollande við að Seðlabanki Evrópu lækki gengi evrunnar til að mæta lækkunum stjórnvalda í Japan og Bandaríkjunum á sínum gjaldmiðlum. Útflutningsiðnaðurinn í Evrópu stendur verr að vígi eftir lækkun yens og dollars.

Þjóðverjar fallast ekki á ,,gengisstefnu" í Evrópusambandinu vegna þess að undir þeim hatti felst að gengi evrunnar yrði að laga að raunverulegri stöðu þeirra efnahagskerfa sem nota gjaldmiðilinn. Suður-Evrópuríkin þurfa 40 til 70 prósent gengisfellingu til að komast úr kreppunni. Slík gengisfelling myndi valda borgarastyrjöld í Þýskalandi.

Evran er varnarlaus gjaldmiðill vegna þess að hagsmunir þeirra ríkja sem að baki standa eru svo ólíkir. Í alþjóðlega gjaldmiðlastríðinu sem nú stendur yfir mun evran tapa. 


mbl.is Vilja ekki gengisstefnu fyrir evruna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband