Er einelti að vera ósammála Jóni Gnarr?

Jón Gnarr lítilsvirti lýðræðislegar leikreglur og gróf undan tiltrú almennings á kosningum með því að reka heila kosningabaráttu sem brandarasmiðju. Jón Gnarr ætlar sjálfum sér nokkuð vítt svigrúm til að draga dár að meðborgurum sínum. Aðrir hljóta að hafa sinn rétt til að láta ljós sitt skína.

Ef Jón Gnarr hefur orðið fyrir gagnrýni á opnum fundi getur það hvorki fallið undir einelti, sem sjaldnast fer fram í viðurvist margra vitna, né ofbeldi - nema hann hafi verið barinn, sem yrði auðvitað að harma.

Jón Gnarr verður að útskýra í hverju misgjörðir kjósenda í Grafarvogi felast. Voru þeir ekki nógu fyndnir? Eða er húmor úthverfafólksins annar en miðbæjarplebbanna?

Boltinn er hjá borgarstjóra. Koma svo, Gnarr.

 

 


mbl.is „Einelti og hreint og klárt ofbeldi“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Viltu ekki bíða eftir lýsingu atburða Páll, áður en þú fellir dóma?

Jón Steinar Ragnarsson, 30.1.2013 kl. 00:18

2 Smámynd: Haraldur Rafn Ingvason

Hmmm... voru það ekki einhverjir aðrir sem grófu undan tiltrú almennings og undirbjuggu þannig jarðveginn fyrir Besta flokkinn???

Sorrý, sannleikurinn er sár, en sjálfstæðisframsóknarfylkingin á Gnarrinn skuldlausann. 

Fyndið, ekki satt...?

Haraldur Rafn Ingvason, 30.1.2013 kl. 00:47

3 Smámynd: Svava Theódórsdóttir

Hvaðan hefur þú það Páll að einelti fari sjaldnast fram í viðurvist margra vitna? Það er bara býsna algengt að slíkt gerist því miður. Og einmitt ef þú varst ekki þarna hvernig veistu þá hvað gekk á?

Svava Theódórsdóttir, 30.1.2013 kl. 01:09

4 Smámynd: Páll Vilhjálmsson

Ég er ekki að fella dóma, en leyfi mér að efast um að ,,einelti" og ,,ofbeldi" hafi farið fram á téðum fundi. En ég hvet borgarstjóra til að útskýra málið betur. Ef fram kemur að efi minn hafi ekki verið á rökum reistur er sjálfsagt að leiðrétta það.

Páll Vilhjálmsson, 30.1.2013 kl. 08:06

5 Smámynd: Emil Örn Kristjánsson

Ég var á umræddum fundi og leyfi mér að fullyrða að borgarstjórinn er að gera lítið úr umræðunni um ofbeldi og einelti með þessum yfirlýsingum sínum. Það er umræðunni ekki til framdráttar þegar menn taka sér stór orð í munn að tilefnislausu.

Emil Örn Kristjánsson, 30.1.2013 kl. 09:19

6 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Jón er vanur að umgangast viðhlæjendur.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 30.1.2013 kl. 09:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband