Árni Páll boðar ESB-atvinnuleysi

Nái Árni Páll Árnason kjöri sem formaður Samfylkingar tekur flokkurinn upp stefnu atvinnuleysis að hætti Evrópusambandsins. Á fundi með stuðningsmönnum sínum hvatti Árni Páll til þess að Íslendingar yrðu aðilar að atvinnulausri Evrópu þar sem yfir tíundi hver er atvinnulaus. 

Meðal ungs fólks er atvinnuleysi í hæstu hæðum, fjórða hvert ungmenni er án atvinnu. Evru-kreppan er  ekki lengur gjaldmiðlakreppa heldur samfélagskreppa þar sem þjóðfélög gliðna í sundur, segir í Telegraph

Gjaldmiðlasamstarf evru-ríkja er beinn áhrifavaldur að gríðarlegu atvinnuleysi í jaðarríkjum Evrópusambandsins, segir í Welt, þar sem vakin er athygli á hve illa Suður-Evrópuríki standa (auk Eista og Íra).

Jafnaðarfrjálshyggjumaðurinn Árni Páll er með uppskrift að sérstakri samfylkingareymd handa Íslendingum. Það væri eftir öðru að hann yrði formaður ESB-flokksins.


mbl.is Aldrei fleiri án vinnu á evrusvæðinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband