ESB-sinni vill leiða lista VG í Reykjavík

Árni Þór Sigurðsson er aðalhöfundur þeirrar stefnu VG að tala tungum tveim og sitt með hvorri í Evrópumálum. Í stefnuskrá VG og flokkssamþykktum segir frá andstöðu við aðild Íslands að Evrópusambandinu en í reynd vinnur forysta flokksins að því hörðum höndum að gera Ísland að aðildarríki.

Félagsmenn og kjósendur VG yfirgefa flokkinn unnvörpum vegna þess að flokkur sem svíkur í lykilmáli er líklegtur til að svíkja í smærri málum

Stærsta mál seinni tíma stjórnmálasögu Íslands er spurningin um afstöðuna til Evrópusambandsins. Með ESB-sinna í forystu í Reykjavík þurfa menn  eins og Bjarni Harðarson ekki lengur að spyrja hvort Eyjólfur hressist og VG verði kosningahæfur á ný.

Erum við ekki báðir á leið til Framsóknarmadömmuna, Bjarni minn, og þú ekki í fyrsta sinn?


mbl.is Árni Þór sækist eftir öðru sæti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ætli rifjað verði upp brask hans með bankabréfin sem hann komst yfir í krafti aðstöðu sinnar?

Á þeim græddi hann milljónir eins og Össur Skarphéðinsson.

Seldi ekki alveg öll í fyrstu umferð ef ske kynni að þau myndu hækka.

Glæsilegir fulltrúar alþýðunnar þessir heiðursmenn.  

Karl (IP-tala skráð) 26.10.2012 kl. 14:48

2 identicon

Bankamaðurinn Árni Þór Sigurðsson sat í stjórn Frjálsa Fjárfestingarbankans og í viðtali við Pressuna þann 20.10.2010 lét hann hafa eftir sér um gengistryggð lán: 

"Ég man þegar þessi lán komu til sögunnar að þá var spurt hvort þau samrýmdust lögum. Þá lágu fyrir lögfræðiálit um að þau væru leyfileg og eftirlitsstofnanir eins og Fjármálaeftirlitið samþykktu þau".

Hvar eru þessi lögfræðálit núna Árni Þór?

Í þessu samhengi má minna á að fáir lántakendur hafa farið jafn illa út úr samskiptum sínum við fjármálastofnanir og fyrrum viðskiptavinir FF.

Fyrir alla muni Vinstir Grænir, komið ykkar hrunverjum í fremstu röð.  

Seiken (IP-tala skráð) 26.10.2012 kl. 15:41

3 identicon

Þarna þarf að hreinsa út.

Vafasöm auðgun vegna tengsla við auðróna og viðskiptalíf og algjör svik við stefnu VG.

Þessi flokkur hlýtur að eiga sæmilega frambærilegt fólk.

Hvers vegna kemur það ekki fram?

Karl (IP-tala skráð) 26.10.2012 kl. 18:27

4 Smámynd: Ómar Gíslason

Hagnaðist ekki Össur á sölu í hlutabréfum sínum í SPRON, allavega hef ég heyrt 60 millur nefndar, en ég sel það ekki dýrara en ég keypti það.

Ómar Gíslason, 26.10.2012 kl. 19:39

5 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Illuga Gunnarssyni er fundið allt til foráttu að hafa setið í stjórn Glitnissjóðs 9, þó fer engum sögum af því að hann hafi misnotað aðstöðu sína.

Þessa dagana þarf hann Jón ekki aðeins að vera Séra, heldur Vinstri Séra líka.

Kolbrún Hilmars, 26.10.2012 kl. 19:40

6 identicon

Ekkert á óvart þessu aumu skrif Pálls Vilhjálmssonar um fólk , en verra er að það skuli vera einhver sem vill gera það sama !

Ekki eru þið að fá borgað fyrir það líka ?

JR (IP-tala skráð) 26.10.2012 kl. 20:50

7 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Ég hef samt aldrei skilið það hversvegna þingið kærði ekki meðferð á ESB umsóknarferlinu þar sem málið fékk ekki eðlilega meðferð sem stjórnarerindið og fór ekki fyrir stjórnarráðsfund samkvæmt lögum og stjórnarskrá. Ég hef reynt að fá upplýsingar um þennan stjórnarráðsfund en þær liggja ekki á lausu.

Valdimar Samúelsson, 26.10.2012 kl. 20:51

8 identicon

Sæll.

Gott hjá Seiken að halda þessu til haga.

Á meðan kjósendur refsa ekki stjórnmálamönnum sem ganga á bak orða sinn munu stjórnmálamenn ganga á bak orða sinna. Svo einfalt er það.

@ÓG: Jú, Össur og Árni Þór högnuðust eða töpuðu í það minnsta ekki eins og þorri fólks með því að selja skömmu fyrir hrun. Þeir sögðu það vera heppni ef ég man rétt en þegar Árni Þór fékk eggið í hausinn hætti ég að trúa þessari heppnis skýringu hans. Össur sagði í skýrslu RNA að hann vissi ekkert um fjármál. Kannski voru þeir heppnir? Aldrei að vita? Ég hef samt meiri áhuga á að vita hver gaf þeim vink enda alveg ljóst í mínum huga að þeir fengu vink. Sérstakur ætti að vera búinn að skoða þetta mál alveg í þaula. Ég ber orðið litla virðingu fyrir því embætti.

Gengur það upp að hafa í framvarðarsveit utanríkismála okkar tvo menn sem hugsanlega hafa gerst sekir um það sama og Baldur? 

Helgi (IP-tala skráð) 26.10.2012 kl. 21:45

9 identicon

Hvernig er það Mosvallamóri, (jr)færð þú ekki greitt fyrir að freta yfir alla sem eru á móti jóhönnu? 

þór (IP-tala skráð) 27.10.2012 kl. 13:33

10 Smámynd: Steinarr Kr.

Eru JR og Þór bloggsóðar sendir af VG til að verja sinn mann? Alla vega þora að koma fram undir nafni.

Steinarr Kr. , 27.10.2012 kl. 14:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband