Pólland hættir við upptöku evru

Pólverjar ætluðu að taka upp evru árið 2014 en tilkynntu að upptökunni sé frestað um ótiltekinn tíma, eða þar til að evru-kreppu lýkur. Aðeins 13 prósent Pólverja telja æskilegt að taka upp evru, samkvæmt frétt Die Welt.

Hagvöxtur er í Póllandi á meðan samdráttur ríkir á evru-svæðinu. Pólverjar eru aðilar að Evrópusambandinu en af 27 ríkjum sambandsins eru 17 í evru-samstarfi.

Vantraust á evrunni stigmagnast eftir því sem kreppan verður dýpri. Tilraunir Evrópusambandsins til að ná tökum á ríkisfjármálum evru-ríkja mistakast ein af annarri. 

Nágrannar evru-svæðisins, Pólverjar, Bretar, Svíar, Danir, óttast hrun gjaldmiðlasamstarfsins og vinna að neyðaráætlunum.

Neyðaráætlun ríkisstjórnar Jóhönnu Siguðardóttur er að ganga í Evrópusambandið og taka upp evru.


mbl.is Markaðir leita niður á við
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Konur við stýrið !!! Kunna ekki að bakka !??

Helga Kristjánsdóttir, 12.7.2012 kl. 15:03

2 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Í seinni heimsstyrjöldinni sigldu skip frá Íslandi með fisk til Englands, þau lönduðu í Hull og Grimsby.  Þegar loftvarnarlúðrar gullu yfir borgunum flýði almenningur í loftvarnarbirgi til að forða sér undan sprengjum Þjóðverja.  Á sama tíma klifruðu íslenski sjómenn upp í möstur skipa sinna til að horfa á þegar þýskar sprengiflugvélar létu sprengjum rigna yfir borgirnar og stefndu þar með lífi og limum í hættu.

Kannast einhver við líkinguna?  Þjóðríki sem hafa látið glepjast inn í evru-samstarfið myndu vilja vera þar fyrir utan í dag og sjá eftir því að hafa látið hafa sig út í það feigðarflan.  Á sama tíma er íslenskur stjórnmálaflokkur sem berst fyrir því á hæl og hnakka að koma íslensku þjóðinni inn í brennandi húsið og vill ólmur að Ísland verði hluti af brunarústinni.

Tómas Ibsen Halldórsson, 12.7.2012 kl. 15:33

3 Smámynd: Árni Gunnarsson

Skipstjórinn gefur áhöfninni til kynna að nú standi til yfirgefa traustasta skipið í flotanum og klöngrast um borð í sökkvandi skipshróf.

Árni Gunnarsson, 12.7.2012 kl. 18:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband