Samfó og Vg í tilhugalífi

Forystufólk í Samfylkingu og Vinstri grænum freistar þess að búa til áhuga fyrir sameiningu flokkanna. Eindrægni í ríkisstjórn, eftir brottvísun Jóns Bjarna fullveldissinna og Árna Páls frjálshyggjustráks, var liður í að skapa rétta stemningu. Vinstri græn Katrín í stað Samfylkingar-Katrínar í iðnaðarráðuneytið er önnur vísbending.

Undanhald vinstristjórnarinnar á öllum vígstöðvum veldur örvætningu í báðum flokkum. Sameining flokkanna undir formennsku Steingríms J. og varaformennsku Össurar er tilraun til að draga úr tapinu.

Sameiginlegt skipbrot eru söguleg rök vinstrimanna fyrir sameiningu. Samfylkingin var stofnuð á þeim grunni og þar áður var fjölmiðlum vinstrimanna ekið á ruslahuga sögunnar í nafni sameiningar.


mbl.is Katrín komi í stað Katrínar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Við skulum vona að þau sameini þessi stefnulausu flokksskrípi, þau fá örugglega minna heildarfylgi sameinuð heldur en í sitt hvoru lagi, að vísu er hætt við að fylgi Vg sé komið niður fyrir 5% sem þýðir ekkert þingsæti. 

Kristján B Kristinsson (IP-tala skráð) 2.1.2012 kl. 15:19

2 identicon

Sakleysisleg, en hef slæma reynslu af þessari katastrfoffu... mjög vonda....

Almennningur (IP-tala skráð) 3.1.2012 kl. 14:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband