285 kg af ESB-skjölum á hvert heimili

Frá árinu 1957 hefur Evrópusambandið gefið út rúmlega 650 þúsund blaðsíður af lögum, reglum og tilskipunum. Af þeim eru um 170 þúsund blaðsíðna bálkur enn í gildi, samkvæmt hugveitunni Open Europe. Þessar 170 þúsund blaðsíður vega um 285 kíló.

Samfylkingarhluti ríkisvaldsins leggur áherslu á að engum sé stætt að mynda sér skoðun á hugsanlegri aðild Íslands að Evrópusambandinu nema fyrir liggi samningur um aðild. Evrópusambandið segir skýrt og ákveðið að aðildarsamningar fela í sér allan lagabálk sambandsins, auk sérákvæða sem gilda um viðkomandi umsóknarríki - og þau ákvæði eru jafnan tímabundnar undanþágur.

Samkvæmt forskrift Össurar og félaga ættu Íslendingar að lesa sig í gegnum 170 þúsund blaðsíður af bálki Evrópusambandsins til að mynda sér skoðun á því hvort Ísland ætti heima í ESB eða ekki. 

Ekki er ráð nema í tíma sé tekið: Verður ekki brátt farið að dreifa 285 kg skjalabunka frá ESB á íslensk heimili?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Á mínu heimili er öllu svona spammi hent ólesnu.

Kristján B Kristinsson (IP-tala skráð) 23.9.2011 kl. 07:32

2 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Eru ekki allir alveg örugglega búinn að lesa EES samninginn??

Hann er sirka 200kg af þessu. 

Þá er bara 85kg eftir.

Sleggjan og Hvellurinn, 23.9.2011 kl. 09:12

3 identicon

Pakkinn stórkostlegi er ekkert smáræði....85 kg af tómu rugli..

.

Guðmundur 2. Gunnarsson (IP-tala skráð) 23.9.2011 kl. 12:40

4 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Bætt landbúnaðarkefi og byggðarstefna kalla ég ekki rugl.

Ég er viss um að hið flókna og óskilvikra landbúnaðarkerfi (sem nánast allir eru sammála að það þarf að stokka upp) er uppá 850kg

Sleggjan og Hvellurinn, 23.9.2011 kl. 12:52

5 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

á á þá við hið íslenska landbúnaðarkerfi..... sem enginn skilur.

Sleggjan og Hvellurinn, 23.9.2011 kl. 12:53

6 Smámynd: Steinarr Kr.

Sleggja, eða hvellur - maður veit víst ekki hvorn persónuleikan maður ræðir við.  Heldur þú virkilega að landbúnaðarkerfi ESB sé eitthvað skárra en okkar?

Steinarr Kr. , 23.9.2011 kl. 21:01

7 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Það er ódýrara, skilvirkara og betri fyrir neytendur.

Það er þar af leiðandi skárra að mínu mati.... en fólk hefur mismunandi skoðanir.

Sleggjan og Hvellurinn, 23.9.2011 kl. 22:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband