Árna Páli er ekki treystandi fyrir krónunni

Gjaldeyrishöftin eru í höndunum á manni sem vill krónuna feiga. Alveg sama á hverju veltur mun Árni Páll Árnason viðskiptaráðherra taka þann kost sem veldur krónunni mestum skaða. Pólitísk framtíð Árna Páls er undir því komin að krónan verði áfram atyrt hornkerling.

Í taugáfalli eftir hrunið kaus þjóðin til valda fólk eins og Árna Pál sem er sannfært um að Íslendingar geti ekki valdið eigin málum og skulu því segja sig til sveitar hjá Evrópusambandinu.

Núna þegar þjóðin hefur jafnað sig á taugaáfallinu situr hún uppi með Árna Pál og félaga sem neita að horfast í augu við þá staðreynd að aðeins fjórðungur kosningabærra manna styður þá.


mbl.is Vill gjaldeyrishöft burt innan árs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll.

Mér er algerlega fyrirmunað að skilja hvers vegna menn vilja enn inn í ESB? Sjá menn ekki vandræðin þar?

Muna menn ekki eftir framkomu ESB gagnvart okkur vegna Icesave? ESB gat ekki farið eftir eigin reglum í því máli.

Muna menn ekki eftir framkomu ESB gagnvart okkur í makríldeilunni?

Sjá menn ekki vandræðin sem steðja að evrunni? Eru stjórnarliðar með bundið fyrir augun?

Helgi (IP-tala skráð) 16.9.2011 kl. 18:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband