Siðlausu fávitagenin

Þegar búð er að splæsa erfðaefni við þráðorðm er næsta verkefni erfðavísindanna að finna siðlausu fávitagenin og genaferja í þau siðviti. Tvær fjölskyldur þar sem ekki þarf að leita að genunum eru

a) Fjölskylda ónefnds bæjarstjóra gjaldþrota bæjarfélags suður með sjó hvers bróður skrifaði bók um stjórnarhætti fyrirtækja og tók sjálfur við rekstri og skrifaði upp á milljarðapappíra án þess að lesa þá.

b) Fjölskylda ónefnds bankastjóra Kaupþings hvers móður er dæmdur þjófur.

Þegar búið er að útiloka tvær ættir hlýtur að vera einfalt að finna siðlausu fávitagenin sem bera ábyrgð á íslenska hruninu anno 2008.


mbl.is Geta nú bætt við erfðaefni þráðorms
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Stefanía Jensdóttir

Þarna er brennt af með ógeðfelldum blossa og blár reykur stígur til himins.

Jenný Stefanía Jensdóttir, 12.8.2011 kl. 21:12

2 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Heitt kakó og góður nætursvefn ætti að ná þessu úr þér.

Ragnhildur Kolka, 12.8.2011 kl. 21:39

3 Smámynd: Vilhjálmur Stefánsson

Guð sé oss næstur..

Vilhjálmur Stefánsson, 12.8.2011 kl. 23:16

4 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Páll, ég játa að yfirleitt finnst mér blogg þitt beitt og skynsamlegt. Í þetta sinn er það bara beitt.

Sigurður Þorsteinsson, 13.8.2011 kl. 00:30

5 identicon

Komið þið sæl; sem fyrr - Páll og aðrir gestir, þínir !

Ragnhildur - Vilhjálmur og Sigurður !

Þegar; Páli tekst bezt upp, í snilldarlegum lýsingum sínum, á raunverulegri atburðarás, standast fæst okkar - ef þá nokkurt, honum; hinn minnsta snúning.

Þarna; lýsir Páll afar myndrænt, óeðli sfrjálshyggju Kapítalízka Kommún ismanum, gott fólk.

Jenný Stefanía !

Þóktist vita; að þú kveiktir undireins, á öflugustu Glóperu þinna skilnings vita - að minnsta kosti mun fyrr, en ég á minni, fornvinkona góð.

Með beztu kveðjum; sem endranær /

Óskar Helgi Helgason   

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 13.8.2011 kl. 00:37

6 identicon

Sjálfstæðisflokkurinn eyðilagði Ísland. Það ætti að banna starfsemi hans með lögum.

Þorvaldur Jónsson (IP-tala skráð) 13.8.2011 kl. 01:57

7 identicon

Páll Vilhjálmsson , hvers vegna er svona erfitt að segja öll orðin ?

,,...siðlausu fávitagenin.."

Þarna ertu að lýsa sjálfstæðisflokknum öllum !

Enda sérðu hvaða fólk tók þetta til sín ???

JR (IP-tala skráð) 13.8.2011 kl. 02:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband