Viðskipti og fullveldi

Evrópusambandið er stofnað til að Þjóðverjar og Frakkar geti búið í sátt. Þau sex ríki sem stofnuðu til sambandsins deildu með sér fullveldi. Í fimmtíu ár hefur fullveldi aðildarþjóða jafnt og þétt minnkað og fullveldi Evrópusambandsins aukist.

Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur skrifar  pistil í Fréttablaðið í dag til að færa rök aðild Íslands að Evrópusambandinu. Meginrökin eru þau að við eigum að stunda viðskipti ivð Evrópusambandið.

Við stundum einmitt viðskipti við Evrópusambandið með þátttöku í Evrópska efnahagssvæðinu.

Vinstrimenn þurfa að átta sig á því að viðskipti og fullveldi eru sitt hvað.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Valur Jensson

Já, þetta voru einföld sannindi, sem þú bentir hér á, Páll.

Svisslendingar hafa líka viðskipti við ESB með tvíhliða samningum.

Stóralvarlegt fullveldisafsal er ekki á dagskrá þeirra.

ESB-sinnar eru ýmist sofandi sauðir um það, sem hér er í húfi, eða forhertir í sviksamlegri hugsun gagnvart lýðveldi okkar og þjóð -- og grundvallar-réttarstöðu hennar.

Jón Valur Jensson, 11.7.2011 kl. 10:52

2 identicon

hvaða land er það sem stundar mestu viðskipti allra við ESB?

Kína.

Er Kína aðili að ESB?  

Frekar undarleg rök.  Eiga Íslendingar bara að eiga viðskipti við ESB, öldrunarhagkerfi allrar mannkynssögunnar?

jonasgeir (IP-tala skráð) 11.7.2011 kl. 11:32

3 Smámynd: Halldór Björgvin Jóhannsson

Eiga Íslendingar bara að eiga viðskipti við ESB, öldrunarhagkerfi allrar mannkynssögunnar?

Aðildarsinnar virðast halda að það sé eini kosturinn, að stunda bara viðskipti við þessi 8% af fólkinu á plánetunni sem ESB er.

Halldór Björgvin Jóhannsson, 11.7.2011 kl. 11:43

4 identicon

Guðmundur Andri er klappstýra Jóhönnu. "Við skulum brosa. Við skulum klappa" skrifar hann og virkilega meinar það.

http://timarit.is/view_page_init.jsp?issId=278892&pageId=4021423&lang=is&q=Loksins-stj%F3rnin

Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 11.7.2011 kl. 12:26

5 identicon

Er hann ekki þokkalegur rithöfundur...???

.

Guðmundur 2. Gunnarsson (IP-tala skráð) 11.7.2011 kl. 13:01

6 Smámynd: Jón Valur Jensson

Ég held hann sé aðallega í skáldskapnum, og svo er hann ágætis bókmenntafræðingur. En ágætustu skáld og mætustu menn í fræðunum og virtir mjög fara oft kollhnís, þegar þeir byrja að skipta sér af þjóðmálum og halda að þeir geti sloppið við að kynna sér fyrst málefnin alveg í grunn; það átti t.d. við um Njörð P. Njarðvík og Véstein Ólason í sambandi við Icesave og Hannes sjálfan Pétursson í sambandi við ESB-innlimunarmálin.

Jón Valur Jensson, 11.7.2011 kl. 13:55

7 identicon

Sennilega hefi Guðmundur átt að ráðgfæra sig við einn áhrifamesta stjórnmálamann Samfylkingarinnar og aðlögunarstarfsmann ESB um út á hvað ESS samningurinn gengur raunverulega og þýðinguna fyrir þjóðina að ganga í sambandið.  Því ver að geta að meðfylgjandi er haft eftir honum í Morgunblaðinu áður en að hann gekk til starfa fyrir eigendaklúbb Samfylkingarinnar Baug og Jón Ásgeir Jóhannesson.:

“Þorsteinn Pálsson telur hagsmuni Íslendinga bærilega tryggða með samningnum um evrópska efnahagssvæðið og við hefðum ekki hag af aðild að Evrópusambandinu. Miðað við þá samninga sem séu í deiglunni milli sambandsins og Norðmanna myndi aðild Íslands að ESB ekki þýða bættan aðgang að Evrópumarkaðnum svo nokkru næmi en hins vegar þyrfum við að fórna yfirráðum yfir auðlindum sjávar.

Þorsteinn segir að Norðmenn séu ekki að bæta markaðsstöðu sína með aðild að ESB svo nokkru nemi. Hins vegar séu þeir að gefa Evrópusambandinu eftir yfirráð yfir norskum sjávarútvegi. 80% af útflutningstekjum Íslendinga komi frá sjávarútvegi og meðan við getum ekki bætt aðgang að Evrópumarkaði með aðild en þyrftum að fórna yfirráðum yfir auðlindinni komi ekki til álita að ganga í sambandið.

Þorsteinn segir Evrópubandalagið skuldbundið til þess að standa við EES-samninginn þótt hin EFTA-ríkin gangi í bandalagið. Þorsteinn segir tæknilegt úrlausnarefni að breyta EES-samningnum í tvíhliða samning milli Evrópusambandsins og Íslands.

“Mér sýnist að við höfum tryggt okkur. Með hinu værum við að fórna yfirráðum yfir landhelginni. Ég held að íslenskir sjómenn myndu aldrei sætta sig við að ákvarðanir um möskvastærð og friðunaraðgerðir með lokun á ákveðnum veiðisvæðum yrðu settar undir valdið í Brussel. Við ætlum okkur að ráða þessari auðlind, hún er undirstaðan undir okkar sjálfstæði,” sagði Þorsteinn Pálsson.”

...

Svo mörg voru þau orð.  Ekki ónýtur liðsmaður okkar sem efumst um ágæti þess að ganga í ESB.

.

Guðmundur 2. Gunnarsson (IP-tala skráð) 11.7.2011 kl. 15:13

8 Smámynd: Jón Valur Jensson

Já, Guðmundur, við ættum að vitna sem oftast í þessi ágætu orð Þorsteins Pálssonar, ekki gerir hann það sjálfur!

Svo þarf ég endilega að fá línu frá þér, komast í email-samband, ég er í jvjensson@gmail.com -- þarf að ræða eitt mál við þig, vinsamlegast.

Jón Valur Jensson, 11.7.2011 kl. 15:17

9 Smámynd: Guðni Karl Harðarson

Páll, síðasta línan hjá þér er svona dálítið út úr samhengi. Fyrir það fyrsta eru Já menn innan allra flokka, Vg er fylgjandi viðskiptum og blandar því ekki saman við Fullveldi, síðan er SF grasið miklu grænna til hægri en vinstri.

Hitt sem þú skrifar er ég gjörsamlega sammála.

Guðni Karl Harðarson, 12.7.2011 kl. 12:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband