Eftir Gnarr kemur grátur

Reykvíkingar gáfu starfandi stjórnmálaflokkum langt nef og kusu Jón Gnarr og Besta flokkinn í nógu miklum mæli til að löðrungurinn sviði en þó ekki til meirihluta. Samfylkingin sneri baki við heilbrigðri skynsemi og leiddi Jón Gnarr til hásætis í höfuðborginni.

Besti var brandari um stund en er orðinn heldur leiður og fylgið hálfu lægra en í kosningunum.

Stjórnmálaflokkurinn sem gerði háðsádeilu að misheppnuðum meirihluta er Samfylkingin og henni mun hefnast fyrir það.

 

 


mbl.is Fylgishrun hjá Besta flokknum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Ég er ekki sammála þér Páll.

 Vegna þess að raunveruleikinn er sá að eftir stjórn gjörspilltra stjórnmálamanna síðustu áratuga varð rán/hrun á heimsmælikvarða sem kosta blóð, svita og tár að leiðlétta!!!

 Og það er dauðadæmd aðferð svika-öfga-afla að kenna Besta flokknum um þær svika-syndir fortíðarinnar.

 Það er öllum fyrir bestu að réttlætið ráði för frá svikulli fortíð og inn í réttláta framtíð! Það þarf engar háskólagráður til að skilja það!!!

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 2.4.2011 kl. 19:30

2 identicon

Hvað eigum við að gera, Anna Sigríður, klappa fyrir trúðnum? Vorkenna trúðnum með tár samfylkingar á báðum kinnum? Borgarstjórinn Jón Gnarr er í fötum sem eru einfaldlega nokkrum númerum of stór. Hann veldur ekki hlutverkinu. Leikstjórinn í baklandinu, Besti flokkurinn, er bókstaflega djók.

Helgi (IP-tala skráð) 2.4.2011 kl. 20:32

3 identicon

Auðvitað er það ekki Jóni Gnarr persónulega að kenna að Orkuveita Reykjavíkur er að míga á sig á mörgum stöðum. Hann kom „að þessum málum“ í fyrravor – en hvaða „réttlæti“ felst í því að trúður úr sjónvarpi bjóði sig fram í verkefnið? Hann hafði nú „fimm háskólagráður“ á skjánum. FIMM.

Eina skýringin er að prófkjörið í borginni var áheyrnarpróf hjá leikurum og prófdómararnir voru tómir asnar sem fíluðu djókið í botn. Verði þeim að góðu. Ég get ekki vorkennt Reykvíkingum sem kusu slíkan trúð sem yfirmann sinn. Þeir höfðu kosið yfir sig meiriháttar djókera síðustu árin (sem sagt seinni hlutann úr ((GNA)RR) og ekki batnaði það í fyrra.

Helgi (IP-tala skráð) 2.4.2011 kl. 21:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband