Magma-brask og lífeyrissjóðirnir

Magma er í eigu raðbraskara að nafni Ross Beaty og huldumanna sem geta ekki verið annað en íslenskir útrásarafgangar. Magma er skúffufyrirtæki stofnað til að fara á svig við íslensk lög. Af því leiðir að íslenskir lífeyrissjóðir geta ekki stundað viðskipti við Magma.

Magma er stofnað til að verða komast yfir auðlindir sem eru í almannaeigu. Hvernig sem málum er velt fram og tilbaka þá er sá eini tilgangurinn að búa til einkagróða úr eigum almennings. Lífeyrissjóðir sem taka þátt í að féfletta almenning eru komnir í stríð við umbjóðendur sína.

Samstarfs lífeyrissjóða við fyrirtæki í opinberri eigu, til dæmis Orkuveitu Reykjavíkur, er annars eðlis. Magma getur aldrei verið hluti af slíku samstarfi.


mbl.is Lífeyrissjóðir í viðræðum við OR og Magma Energy
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Bragi Sigurðsson

 Þetta er sá sami Arnar Sigurmundsson sem var tilbúinn að taka heim hundruð miljarða af fé lífeyrissjóðanna og kasta þeim í bankasukkið við hrun þess. Treysti ekki þessum manni fyrir mínum lífeyrissjóð!

Þetta hafði hann að segja á ársfundi lífeyrissjóðana í fyrra:
"Stjórnvöld óskuðu eftir aðkomu lífeyrissjóðanna við upphaf bankakreppunnar og fóru fram fundir forystusveitar lífeyrissjóðanna með nokkrum ráðherrum í Ráðherrabústaðnum föstudag...inn 3. október og laugardaginn 4. október sl. Erindi stjórnvalda var að óska eftir því að sjóðirnir flyttu heim um 50% af erlendum eignum sínum að verðmæti á þáverandi gengi um 250 milljarðar króna. Boðað var til mjög fjölmenns fundar á vegum LL fyrr á laugardeginum áður en haldið var á fund ríkisstjórnar nýjan leik. Sjóðirnir tóku vel í þessa málaleitan stjórnvalda að uppfylltum ákveðnum skilyrðum í ályktun. Ekki reyndi þó á þennan velvilja lífeyrissjóðanna þegar í ljós kom að morgni mánudagsins 6. október sl. að vandi fjármálafyrirtækjanna var mun meiri en reiknað hafði verið með."
Þetta voru hann og félagar hans tilbúnir að gera; rýra þessa 250 miljarða af okkar fé með 50% ef ekki tapa þeim algjörlega. Það er hneyksli að þessir menn sitji enn við stjórn í lífeyrissjóðunum. Lífeyrissjóðirnir okkar eru engir bjargráða- eða atvinnubótasjóðir!
Þessi maður er að leika jólasvein með okkar peninga og ætti að vera búið að koma honum frá fyrir löngu.

Jón Bragi Sigurðsson, 31.3.2011 kl. 09:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband