Sunnudagur, 30. janúar 2011
Samfylkingin öfgaflokkur í afneitun
Samfylkingin er einangruð í Evrópumálum og nú bætist við annar stór málaflokkur þar sem flokkurinn stendur einn, sjávarútvegsmál. Jóhanna Sig. gerði Samfylkinguna að ótrúverðugu stjórnmálaafli með frekjukastinu vegna úrskurðar Hæstaréttar um ólögmæti stjórnlagaþingskosninga. Á alþingi tengdi Jóhanna stjórnlagaþingið við sjávarútvegsstefnuna sem var heldur langsótt og sýndi inn í hugarheim veruleikafirringar.
Samfylkingin hefur undanfarin misseri jafnt og þétt fjarlægst íslenskan veruleika. Flokkurinn talar fyrir lítinn hóp einstaklinga sem flestir eru á opinberu framfæri og eru hvorki með tenginguna við landsbyggðina né atvinnulífið.
Óþjóðleg og óboðleg stefna Samfylkingarinnar í þjóðþrifamálum hlýtur að leiða til þess að Vinstrihreyfingin grænt framboð endurskoði ríkisstjórnarsamstarfið.
Leiðir til gjaldþrota í sjávarútvegi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Eitt er gott við þær heitingar Jógrímu að láta kjósa aftur. Það yrði hennar banabiti haldi hún því til streitu. En ég heyrði það bara si sona á venjulegu hjólbaraðaverkstæði að nú sé komið að suðumarki almennings og stutt í kveikiþræðinum. Þessir kallar eru víst örugglega með hondina á púlsinum og vita hvað er í bígerð.
Púkinn (IP-tala skráð) 30.1.2011 kl. 23:14
Áhugavert af heimasíðu vg
http://www.vg.is/stefna/sjavarutvegur/
4. Stjórn fiskveiða
Séra Jón (IP-tala skráð) 30.1.2011 kl. 23:51
Fleira úr stefnuskrá VG:
Gunnar Heiðarsson, 31.1.2011 kl. 01:48
Merkilegt hvað kvótagreifar geta grenjað og beðið sér vægðar minnir á bankanna eftir hæstaréttar dómin í suma þegar gengistrygðu lánin voru dæmd ólögleg þá sögðu bankarnir að þyrfti að sýna sangirni ,
hafa kvótagreifar einhver tíman sýnt sanngirni þegar þeir voru að véla til sín kvóta
hafa kvótagreifar sínt leigendum kvóta sanngirni
borguðu kvóta eigendur skatt af leigu kvóta þórunnar sveinsdóttur leigðu kvótan á meðan nýtt skip var smíðað fyrir 2 miljarða skipið kostaði 1,5 miljarð
bpm (IP-tala skráð) 31.1.2011 kl. 09:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.