Samtök afneitara vilja Magma-afréttara

Ekki kemur á óvart að Vilhjálmur Egilsson tali enn útrásartungum. Hvorki Vilhjálmur né samtökin hans hafa gert upp við fortíðina þar sem óreiðufólkið stjórnaði ferðinni í efnahagslegri plastveröld. Magma er útrásarafréttari til að fresta timburmönnunum.

Á þingmannsárum sínum barðist Vilhjálmur m.a. fyrir því að sumartími yrði tekinn upp hér á landi til að auðvelda millilandaviðskipti. Framkvæmdastjórinn var trúverðugri í den.

 


mbl.is „Pólitísk leiktjöld“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: hilmar  jónsson

Svei mér þá ef við erum ekki sammála Páll.

hilmar jónsson, 27.7.2010 kl. 21:06

2 identicon

Hann ver Baugsmafíuna enda Jón Ásgeir sem tryggði honum embættið.  Hann sér ekkert athugavert við 60 - 70% markaðseinokun feðganna á dagvörumarkaði, eins og hefur komið skýrt fram í viðtölum við hann.  Það eru til góðir og slæmir kapítalistar.  Vilhjálmur er á pari við Baugsgengið og seint verða þeir flokkaðir í hóp þeirra góðu.

Guðmundur 2. Gunnarsson (IP-tala skráð) 28.7.2010 kl. 14:02

3 identicon

Undarlegt að Jón Ásgeir hafi stutt Vilhjálm, í ljósi þess að Vilhjálmur ásamt Davíð Oddsyni studdi fjölmiðlafrumvarpið umdeilda, sem Ólafur Ragnar ákvað að neita að skrifa undir.

Bjarni (IP-tala skráð) 28.7.2010 kl. 20:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband