Fimmtudagur, 22. júlí 2010
Ráðuneyti í þágu þjóðar en ekki auðmanna
Auðræði útrásarinnar smitaðist í króka og kima stjórnsýslunnar. Stjórnmálamenn beygðu sig og bugtuðu fyrir auðmönnum og embættismenn dignuðu í hnjám. Auðmennirnir gengu á lagið og sóttu þjónustu til stjórnsýslunnar sem ekki á að veita. Það heitir þjófnaður þegar embættismenn leiðbeina auðmönnum framhjá lögum og reglum til að auðvelda einkavæðingu orkuauðlindanna.
Magma-málið er prófsteinn. Ef auðræðið blífur á kostnað þjóðarhagsmuna er endurreisnin fortöpuð.
Vilja upplýsingar um samskipti ráðuneyta við Magma | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
"Magma-málið er prófsteinn. Ef auðræðið blífur á kostnað þjóðarhagsmuna er endurreisnin fortöpuð."
Þetta er kjarni málsins. Þetta er sjálfstæðismál og þjóðernismál.
Lesið síðasta pistil Láru Hönnu á Eyjunni. Það er ekki bara spurning um HS Orku.
http://blog.eyjan.is/larahanna/2010/07/22/hver-axlar-abyrgdina/
Þetta er pólitískt mál, en ekki flokkspólitískt.
einsi (IP-tala skráð) 22.7.2010 kl. 18:49
Hvað ætli eigi að vera margir svona "prófsteinar"?
Gulli (IP-tala skráð) 22.7.2010 kl. 19:32
Er Páll Vilhjálmsson búinn að fá sig fullsaddan af ESB rausi, og farin að sjá skólafélagana úr háskólanum í réttu ljósi ?
Það eru bara aular að vinna í íslenskri stjórnsýslu !
Þetta þarf ekki háskólapróf til að sjá þetta , bara almenna skynsemi !
E.S. Annars má Páll Vilhjálmsson fara að segja okkur hvaða hagsmuni hann á með kvótaeigendum og eigendafélagi bænda ?
JR (IP-tala skráð) 22.7.2010 kl. 20:04
Hvað á JR við með "eigendafélag bænda"? Bændasamtök Íslands?
Baldur (IP-tala skráð) 22.7.2010 kl. 23:38
Stærri hluti þjóðarinnar vill ekki inn í Evrópu-stórríkið, JR. Það eru ekki tengsl þarna í milli hjá hinum almenna manni og kvóta, svo þú mættir hætta að leggja menn í einelti.
Elle_, 22.7.2010 kl. 23:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.