Hruniđ eyddi baklandi Samfylkingarinnar

Samfylkingin og útrásin verđa til á sama tíma, upp úr aldamótum, og víxlverkun er á milli auđmanna og flokksins. Ingibjörg Sólrún og Össur Skarphéđinsson sórust í fóstbrćđralag viđ Jón Ásgeir Jóhannesson Baugsstjóra og hlaut sambandiđ eldskírn sína í deilunni um fjölmiđlalögin veturinn 2003-2004.

Menningarlíf flokksinsvar útrásarvćtt; Hallgrímur Helgason, stundum kallađur Baugsskáld, var snemma gerđur ađ hirđskrifara flokksins. Hópurinn kenndur viđ Mál og menningu fór í vasann á öđrum auđmanni, Björgólfi eldri. Samfylkingin fékk Björgólf á landsfund sinn áriđ 2003.

Tengsl Samfylkingarinnar viđ atvinnulífiđ er einkum í gegnum fjármálalífiđ, kvikmyndagerđ og tónlist; greinar sem tengjast 101 Reykjavík.

Samfylkingin er í stríđi viđ grunnatvinnuvegi ţjóđarinnar, landbúnađ og sjávarútveg. Mentalítet dćmigerđs samfylkingarmanns er rótfast í Kvosinni og hugmynd hans um ađ komast úr bćnum felst í ađ keyra Keflavíkurveginn upp í flugvél.

Hruniđ eyddi baklandi Samfylkingarinnar. Í síđustu könnun Gallup fékk flokkurinn 20 prósent.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gaman ţćtti mér ađ vita hvađ ţú álítur um áhrif hrunsins á Sjálfstćđisflokkinn. Annars er ég sammála ţér hvađ Samfylkinguna varđar. Hún er fyrir löngu orđin flokkur efri millistéttar (ţ.e. ef viđ vćrum stéttskipt ţjóđfélag, en ţeir eru margir sem ekki mega heyra á ţađ minnst).

Guđrún Ćgisdóttir (IP-tala skráđ) 11.6.2010 kl. 18:34

2 identicon

Góđur pistill og hverju orđi sannari.

Guđmundur 2. Gunnarsson (IP-tala skráđ) 11.6.2010 kl. 19:21

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband