Þriðjudagur, 23. mars 2010
Magma mjólkar almenning í boði Samfylkingar
Samfylkingin ætlar að hleypa kanadísk-sænska skúffufyrirtækinu Magma inn í íslenska orkugeirann. Í stað þess að nota tækifærið og gera orkufyrirtækin aftur af almenningsveitum er markmið vinstri stjórnarinnar að auðvæða almannaeign.
Íslenskir stjórnmálamenn ætla ekki að læra af reynslunni sem fékkst af samkrulli auðmannafélagsins FL-group og Orkuveitu Reykjavíkur.
Samfylkingin er vitanlega flokkurinn sem dregur fram rauða dregilinn fyrir aðgang auðmanna að almannaeigum. Nema hvað.
Athugasemdir
Hefði ekki verið ráð að vísa þessu máli til Hæstaréttar til umsagnar eða úrskurðar þar sem lögin virðast alls ekki nógu skýr sbr ágreininginn í nefndinni?
Eða var sú leið etv ekki fær í þessu tilfelli?
Birgir Stefáns (IP-tala skráð) 23.3.2010 kl. 22:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.