Arion hvetur til lögbrota

Arion banki verðlaunar þá sem komu landinu á kúpuna. Sérstaklega fá þeir sem sannanlega brutu lög forgangsmeðferð hjá Arion. Ólafur Ólafs setti Kaupþing á hausinn  og er grunaður maður. Hann fær með aðstoð Arion að halda Samskipum.

Jón Ásgeir hlaut dóm í Baugsmálinu og Hagar eru dæmdir fyrir að brjóta samkeppnislög. Arion ætlar að fær Jóni Ásgeir og Jóhannesi föður hans Haga á silfurfati.

Ef til væri formlegur félagsskapur fjársvikara og fjárglæframanna myndi Arion vera viðskiptabanki þeirra.


mbl.is Úrskurður um sekt Haga stendur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er greinileg enn líf í mafíu útrásarvíkinga og  bankastarfsmanna. 

Sigurður (IP-tala skráð) 19.2.2010 kl. 21:12

2 identicon

Já Páll.  Menn sem bjuggu til fjölda félaga til að geta með hundakúnstum sloppið örugglega og eiga undanskot og undanfæri hér og þar, eru í hávegum hafðir.  Við þeim er hlegið og tekið við nýju hlutafé frá þeim þótt vitað sé að það eru peningar sem sviknir voru út með loftfimleikum.  

Við einyrkjann sem veðjar ekki bara tækjum og tólum, heldur líka húsi og heimili er sagt þvi miður.  Því miður við getum ekkert gert því það mundi skapa svo slæmt fordæmi, þú verður því miður að láta allt af hendi.  Ó, hafðirðu ekki vit á að koma peningunum sem við lánuðum þér undan?  Til hvers varstu að taka þessi lán vinur?

 Hvað á að segja um svona hyski?

Elvar Eyvindsson (IP-tala skráð) 19.2.2010 kl. 21:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband