Hreinsanir í Blađamannafélaginu

Sigríđur Dögg formađur Blađamannafélags Íslands stendur ađ tillögu um ađ taka atkvćđisréttinn af hluta félagsmanna. ,,Ég kaus Sigríđi Dögg sem formann," segir gamalreyndur blađamađur, ,,ţađ er ţađ versta sem ég hef gert félaginu." Tillaga Sigríđar Daggar er á dagskrá framhaldsađalfundar BÍ í nćstu viku.

Sigríđur Dögg játađi skattsvik fyrir ári en hefur neitađ ađ gera nánari grein fyrir umfangi og fjárhćđum, segir skattsvikin einkamál. Hún var látin fara frá fréttastofu RÚV eftir ađ upp komst um undanskotin frá samneyslunni. Margir blađamenn telja ófćrt ađ skattsvikari stjórni félaginu. Til ađ koma ár sinni betur fyrir borđ í sjóđsstreymi stéttafélagsins rak Sigríđur Hjálmar Jónsson framkvćmdastjóra BÍ um síđustu áramót og tók sér fullt starf í félaginu. Formennska í BÍ var áđur hlutastarf.

Sigríđur Dögg tilheyrir hópi blađamanna sem kenndur er viđ RSK-miđla (RÚV, Stundin og Kjarninn, sem heita nú Heimildin). Hópurinn hefur ráđiđ ferđinni í stéttafélaginu síđustu ár. Fimm blađamenn á RSK-miđlum eru međ stöđu sakborninga í byrlunar- og símastuldsmálinu. Formađur BÍ hefur lagt sig í líma ađ taka undir ófrćgingarherferđ sakborninga gagnvart lögreglu, sem rannsakar alvarleg afbrot, byrlun og símastuld. Eins og formađurinn segir, ţá er ţađ einkamál, en ekki opinbert mál, ţegar blađamenn komast í kast viđ lögin.

Andspyrna er gegn vegferđ Sigríđar Daggar og RSK-liđa. Trúverđugleiki stéttarinnar er í húfi. Fyrir skemmstu sendu 26 félagar í BÍ fyrirspurnir til formannsins um útgjöld sem stofnađ var til ađ hrekja Hjálmar Jónsson úr starfi framkvćmdastjóra og hirđa af honum mannorđiđ í leiđinni. Í hópnum eru eldri blađamenn, flestir ef ekki allir komnir á eftirlaun.

Sigríđur Dögg hugsar blađamönnum međ múđur ţegjandi ţörfina. Áđur hefur hún úthýst hópnum úr húsnćđi BÍ en ţar höfđu eldri blađamenn vikulega fundi til ađ rćđa landsins gagn og nauđsynjar. Hópurinn flutti fundi sína í Gunnarshús, húsnćđi Rithöfundarsambandsins.

Nú lćtur Sigríđur Dögg kné fylgja kviđi, hyggst međ lagabreytingu svipta blađamenn á elli- og örorkulífeyri atkvćđisrétti á félagsfundum. Núgildandi lagagrein er eftirfarandi:

2.3. Félagsmađur, sem kominn er á eftirlaun og er ekki lengur í fullu starfi eđa býr viđ örorku, skal vera undanţeginn greiđslu félagsgjalda. Hann skal ţó sem áđur njóta félagsréttinda.

Tillaga Sigríđar Daggar er ađ lagagreininni verđi breytt. Nýja útgáfan hljómar svona: 

Félagsmanni, sem hćttir störfum vegna aldurs eđa örorku, skal vera heimilt ađ vera áfram félagi hafi hann greitt félagsgjöld til félagsins nćstliđna 6 mánuđi áđur en hann lét af störfum. Hann skal eftir ţađ vera undanţeginn greiđslu félagsgjalda og hafa málfrelsi og tillögurétt á fundum félagsins en ekki atkvćđisrétt. (leturbr. pv)

Rökstuđningur formannsins er ađ ekki sé tilhlýđilegt ađ örorku- og ellilífeyrisţegar fari međ atkvćđisrétt í félagi sem ţeir ţó hafa, margir hverjir, átt ađild ađ mestan hluta starfsćvinnar. Fremur kaldar kveđjur frá formanni Blađamannafélags Íslands til eldri félagsmanna og ţeirra sem glíma viđ örorku. Atkvćđisréttur í stéttafélagi er hliđstćđur kosningarétti í ţjóđfélaginu. Ađ taka réttinn af fólki til ađ greiđa atkvćđi er félagslegt ofbeldi. 

,,Fyrst var rćnt úr félaginu, nú á ađ rćna félaginu," sagđi sami blađamađur, og vitnađ er í ađ ofan, í samtali viđ tilfallandi.

Skattsvikarinn í formennsku stéttafélags blađamanna lćtur ekki ađ sér hćđa. Framhaldsađalfundurinn, sem tekur afstöđu til lagabreytinganna, er 4. september, haldinn í húsnćđi sem ekki er (enn) komiđ í svarta Airbnb-útleigu.

 


Bloggfćrslur 29. ágúst 2024

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband