Föstudagur, 3. september 2021
Ekki eitt sannleikskorn - hvaða menning er það?
Hörður Felix Harðarson, lögmaður knattspyrnumannsins Kolbeins Sigþórssonar,skrifar
Konan sem steig fram, og hefur farið mikinn í fjölmiðlum, lýsti því svo að lögmaður á vegum KSÍ hafi haft samband við hana og boðað hana til fundar með meðlimum stjórnar KSÍ til að ganga frá þagnarskyldusamningi. Vakti þetta mikla athygli enda án nokkurs vafa fréttnæmt ef einhver á vegum sambandsins hefði gegnt þessu hlutverki. Síðar kom fram hjá umræddri konu að undirritaður hafi að líkindum verið sá lögmaður sem í hlut átti. Í þessari frásögn er hins vegar ekki eitt sannleikskorn. Undirritaður átti aldrei í samskiptum við konuna, var ekki að vinna fyrir KSÍ í þessu máli, boðaði ekki til fundar með stjórnarmanni KSÍ og bauð henni ekki á nokkrum tímapunkti þagnarskyldusamning.
Hörður Felix rekur þann miska og tjón sem skjólstæðingur hans hefur orðið fyrir og spyr: ,,Er þetta raunverulega það þjóðfélag sem við viljum lifa í? Er það rétt og eðlilegt að einstaklingar séu fordæmdir og útskúfaðir með þessum hætti, án dóms og laga?"
Réttmætar spurningar.
Önnur spurning: hvað kallast sú menning þar sem frásögn með ,,ekki eitt sannleikskorn" ræður ferðinni um orðspor manna og afkomu?
![]() |
Lögmaður Kolbeins segir ákvörðun KSÍ misráðna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Föstudagur, 3. september 2021
Réttlátt veðurfar og ranglát eldgos
Er eldgosið í Fagradal réttlátt? Spurningin á ekki við þar sem náttúran er hvorki réttlát né ranglát. Hún einfaldlega er.
Litla eldgosið losar meira af koltvísýringi, CO2, en öll bílaumferð á Íslandi. Fyrir suma er heilmikið ranglæti að koltvísýringur fari út í andrúmsloftið. En aðeins ef kenna má manninum um útblásturinn.
Fyrir þúsund árum, þegar Íslendingar bjuggu á Grænlandi, var 1,5 gráðu hlýrra en í dag. Hvorki Eiríki rauða né Leibba syni hans datt í hug að þakka réttlátu veðurfari að hægt var að stunda kvikfjárrækt í Grænlandi og skreppa til Vínlands í sumarfrí.
Í samtímanum er trúarþörfin ríkari en fyrrum. Við trúum að maðurinn stjórni veðurfari á jörðinni og að náttúran sé í aukahlutverki. Með öðrum orðum trú á bull, ergelsi og firru.
![]() |
Þjóðhagsráð fundaði um réttlát umskipti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)