Þriðjudagur, 18. maí 2021
Hamas-stuðningur á alþingi
Hamas eru hryðjuverkasamtök sem nota íbúa Gaza sem mannlega skildi. Hamas skjóta síðustu daga yfir tvö þúsund flugskeytum á Ísrael frá þéttbýlinu í Gaza gagngert til að fórna almennum borgurum, ísraelskum og arabískum, á altari trúarhaturs.
Nokkrir þingmenn á alþingi Íslendinga fordæma varnarstríð Ísraela en halla ekki orði á hryðjuverkasamtökin.
Þingmennirnir segjast ,,standa með mannréttindum og að beita sér fyrir frjálsri Palestínu." Mannréttindi og frelsi í hryðjuverkaríki? Ætlast þetta fólk til að vera tekið alvarlega?
Þingmenn fordæma aðgerðir Ísraels | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Þriðjudagur, 18. maí 2021
Nýr Hitler óskast, CNN og RÚV
Fréttamaður CNN tísti að heimurinn þyrfti nýjan Hitler. Andúð á gyðingum tekur á sig ýmsar myndir í Bandaríkjunum, Bretlandi, sbr. viðtengda frétt, og í Þýskalandi.
RÚV segir fréttir af átökum Hamas og Ísraelshers sem skilja má þannig að Ísraelsmenn geri sér að leik að drepa almenna borgara.
Yfirvaraskegg á Efstaleiti.
Ráðist á breskan rabbína | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Þriðjudagur, 18. maí 2021
Trump-stefnan í fullu gildi: öxullinn Grænland-Ísland
Biden-stjórnin í Washington fylgir utanríkisstefnu Donald Trump. Brotthvarf Bandaríkjahers frá Afganistan er eitt dæmi og annað er áherslan á norðurslóðir.
Stutta svarið er nei, svaraði bandaríski utanríkisráðherrann Antony Blinken, þegar hann var spurður hvort Bandaríkin hefðu enn áhuga á að kaupa Grænland.
Langa svarið er já, Washington lítur á Grænland og Ísland sem nærsveitir meginlands Bandaríkjanna. Árið 2006 afbyggði Bandaríkjaher Keflavíkurstöðina til að nota vígtólin í Írak og Afganistan. Núna er annað hljóð í strokknum og Sámur frændi reisir mannvirki á Miðnesheiði.
Stefna Donald Trump var afleiðing endurmats á brýnum hagsmunum Bandaríkjanna.
Áhrifamikið framlag í þeirri endurskoðun er bók Stephen M. Walt, The Hell of Good Intentions, frá 2018. Walt tilheyrir þeirri hefð í utanríkispólitík sem kennd er við raunsæi.
Biden-stjórnin er nógu tengd veruleikanum til að hverfa ekki frá raunsæisstefnu Donald Trump.
Vilja ekki lengur kaupa Grænland | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)