Föstudagur, 14. maí 2021
Gréta styður Hamas
Gréta Thunberg, sænski loftslagsunglingurinn, tekur afstöðu með hryðjuverkasveitum Hamas gegn Ísrael með færslu á félagsmiðli. Samkvæmt þýsku útgáfunni Die Welt sakar Gréta Ísraelsmenn um stríðsglæpi.
Þjóðverjar eru, af sögulegum ástæðum, næmir á gyðingahatur. Kanslaraefni Kristilegra demókrata, Armin Laschet, segir orð Grétu ekki vel ígrunduð.
Þýski græninginn Volker Beck spyr Grétu í tísti hvort eldflaugaárásir Hamas bæti loftslagið. Sú sænska á eftir að svara.