RÚV virkjar Panama-bandalagið fyrir Helga Seljan

Helgi Seljan var úrskurðaður brotlegur við siðareglur RÚV í ákefð sinni að koma höggi á Samherja. Eftir úrskurðinn leggur hagsmunahópurinn á Efstaleiti ofurkapp á að sannfæra alþjóð að Samherji sé vondi kallinn en Helgi góði gæinn. Nýjasta tilraunin er að virkja bandalag fréttadeildar RÚV við þýska dagblaðið Süddeutsche Zeitung.

Eins og menn eflaust muna bjó hagsmunahópurinn á Efstaleiti til fjölmiðlastorm fyrir fimm árum sem felldi ríkisstjórn Íslands og svipti nokkra menn ærunni. Í kynningu RÚV á Panamaskjöldum segir:

Þátturinn var unnin í samstarfi við Reykjavik Media, Alþjóðasamtök rannsóknarblaðamanna og þýska blaðið Süddeutsche Zeitung.

Og núna, fimm árum síðar, er bandalag RÚV og Süddeutsche Zeitung endurvakið til að rétta hlut Helga Seljan í Samherjamálinu. ,,Hryðjuverk gegn fjölmiðlum," segir þýski fjölmiðillinn og lætur eins og Helgi siðabrotlegi megi ekki vamm sitt vita í sannleiksleitinni. 

Velþekktur samstarfsfjölmiðill RÚV á Íslandi, vinstriútgáfan Kjarninn, er svo fenginn til að útlista á íslensku boðskap þýska samstarfsaðila hagsmunahópsins á Efstaleiti.

Á meðan heldur RÚV áfram að gera hlut Samherja sem verstan og grefur í leiðinni undan íslenskum viðskiptahagsmunum.

Panamaskjölin voru ekki til, rétt eins og meint skjal sem Helgi veifaði í upphafi Samherjamála fyrir bráðum áratug. En hagsmunahópurinn á Efstaleiti svífst einskins við að telja alþjóð trú um að hvítt sé svart.

 


Bloggfærslur 13. maí 2021

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband