Mannlíf og RÚV til varnar Róbert Wessman

,,Ég taldi fulla ástæðu til þess að setja fót­inn niður og tjáði Ró­bert ít­rekað, að ég myndi ekki beita mér fyr­ir því að koma höggi á um­rædda aðila í fjöl­miðlum og vega bein­lín­is að æru og mann­orði þeirra, eins og hann vildi. Ég var um tíma út­gef­andi Mann­lífs, sem Ró­bert fjár­magnaði..." segir Halldór Kristmannsson sem til skamms tíma var náinn samstarfsmaður Róbert Wessman.

Mannlíf kynnir sig sem ,,beittur og lifandi fjölmiðill" er ekki bitlaust í vörn sinni fyrir Róbert. Útgáfan kynnir til sögunnar Láru Ómarsdóttur, gamalkunnan RÚV-ara, sem ber í bætifláka fyrir launagreiðanda sinn þessa stundina.

Þóra Arnórsdóttir, samstarfsmaður Láru á RÚV, skrifar frétt á Efstaleitis-miðilinn hliðholla Róbert.

Auðmenn kaupa sér almannatengla úr röðum blaða- og fréttamanna og fá í kaupbæti tengslanetið. Og hvað gera blaðmenn í löglega siðleysinu? Jú, þeir veita hverjir öðrum verðlaun fyrir vel unnin störf.

 


mbl.is „Morðhótanir og líkamsárásir“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samfélagslokanir og upplýsingaóreiða

Þjóðverjar ganga ekki í takt í samfélagslokunum vegna farsóttar. Landsmóðirin Merkel er í öngum sínum. Er það vegna upplýsingaóreiðu sem Þjóðverjar láta af þeim sið að hlýða miðstýrðu ríkisvaldi?

Nei, ekki er skortur á sönnum upplýsingum um Kínaveiruna og afbrigði hennar. X prósent veikist og y prósentum verður veiran að fjörtjóni. Hlutföllin eru þekkt, þótt prósentu skeiki til eða frá eftir hvaða þýði er skoðað.

Aftur er annað mál hvaða ályktanir eru dregnar af upplýsingunum. Sumir segja nauðsynlegt að hefta útbreiðslu veirunnar með samfélagslokunum á meðan aðrir telja afleiðingar lokana of dýru verði keyptar. 

Hér á Ísland er almenn samstaða um hóflegar lokanir og upprætingu smita með einangrun og sóttkví. Við höfum sömu upplýsingar og Þjóðverjar en drögum einsleitnari ályktanir af þeim en þýskir.

Hugtakið ,,upplýsingaóreiða" er einatt notað til að berja á fólki sem hugsar öðruvísi en yfirvöld vilja. Það er ekki falleg iðja. 


mbl.is Merkel hvetur öll lönd Þýskalands til að skella í lás
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 29. mars 2021

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband