Þriðjudagur, 8. september 2020
Jesú og Múhameð
Jesú er myndgerður samkvæmt þeirri tísku er ræður ferðinni hverju sinni.
Múhameð spámaður er aftur ekki myndgerður, enda gætu saklausir tapað lífinu.
Fylgjendum frelsarans fækkar á vesturlöndum en múslímum fjölgar.
Hvers megnar sá brjóstgóði andspænis vígóðum hryðjuverkamanni?
Brjóstgóður Jesús á götum borgarinnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Þriðjudagur, 8. september 2020
RÚV segir Namibíu Úkraínu
RÚV kallaði norska bankann DNB til vitnis um að Samherji stundaði arðrán í Namibíu. Reikningi alþjóðlegs félags, Cape Cod, var lokað hjá DNB en Samherji átti í viðskiptum við félagið.
Ályktun RÚV er að ástæða lokunar reikningsins sé Samherji. Í alræmdum Kveiks-þætti var skjalið sýnt sem átti að sanna rökleiðsluna á Efstaleti.
En sé skjalið lesið kemur fram að reikningi Cape Cod var lokað vegna viðskiptaþvingana er beitt var vegna deilna Rússa og vesturlanda um Úkraínu.
Namibía er sem sagt ríki í Afríku en Úkraína er í Austur-Evrópu. En hvað skiptir landafræði og sannleikur máli þegar RÚV-arar eru í heilagri herferð gegn norðlenskri útgerð.
,,Illvilji eða yfirsjón," segir forstjóri Samherja.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)